flugfréttir
Telja reglu um rýmingu á 90 sekúndum vera úrelda
- Hvetja FAA til þess að endurskoða regluna út frá raunverulegum forsendum
Reglugerðir í fluginu gera ráð fyrir að flugvél skal rýmd á 90 sekúndum í neyðartilfellum
Eftirlitsdeild innan samgönguráðuneytis Bandaríkjanna segir að endurskoða þurfi reglu innan flugsins er varðar hámarkstíma sem rýma skal flugvél og koma öllum farþegum frá borði ef upp kemur neyðarástand.
Í lög og reglugerðum í fluginu, bæði hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og hjá EASA í Evrópu er farið fram á að rýma skal flugvél á 90 sekúndum í nauðlendingu og einnig í neyðartilfellum.
Eftirlitsdeild samgönguráðuneytis Bandaríkjanna segir að um 30 ára gamla
reglugerð sé að ræða sem þurfi að endurskoða þar sem hún er ekki í takt
við flugsamgöngur eins og þær eru í dag.
Samgönguráðuneytið hvetur FAA til þess að breyta reglunni þar sem
niðurstöður rannsóknar leiðir í ljós að hegðunarmynstur farþega í dag sé ekki það sama og var á árum áður þar sem farþegar eru gjarnir á að reyna að taka með sér handfarangur frá borði þrátt fyrir að slíkt sé bannað auk þess sem sumir farþegar hafa með sér dýr sem veita þeim andlegan stuðning.
Fram kemur að FAA hafi ekki haldið utan um tölfræðilegar upplýsingar varðandi hvað rýming á flugvél taki í raun og veru langan tíma þegar neyðartilfelli eiga sér stað og sé eingöngu farið eftir gögnum frá flugvélaframleiðanda sem eru orðin meira en tveggja áratuga gömul.
Þá segir að flugfélög séu farin að koma fyrir fleiri sætum um borð í flugvélar
sínar þar sem sæti eru farin að taka minna pláss en þau gerðu fyrir mörgum
árum síðan og með þrengra bili á milli sæta sem gerir það að verkum að
rýming getur tekið lengri tíma en þær 90 sekúndur sem reglugerð gerir ráð fyrir.
FAA er hvatt til þess að endurskoða þennan tímaramma með því að fara
yfir flugslysagögn og rýna í tölfræðilegar upplýsingar frá neyðartilfellum og framkvæma prófanir á því hversu langan tíma það tekur í raun að rýma flugvél.
FAA hefur svarað samgönguráðuneytinu þar sem flugmálayfirvöld samþykkja þessi tilmæli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.