flugfréttir
Ryanair þarf stóra ríkisaðstoð til að forðast hópuppsagnir
Bókanir hjá Ryanair fyrir ferðatímabilið í nóvember er mjög dræmt og aðeins búið að bóka 10% af þeim fjölda sem búið var að bóka á sama tíma í fyrra
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að lágfargjaldafélagið írska neyðist til þess að láta starfsfólk taka að sér launalaust leyfi í vetur ef opinber ríkisaðstoð til félagsins verður ekki framlengd.
O´Leary segir að horfurnar í vetur séu mjög slæmar og gerir Ryanair ráð fyrir að fljúga aðeins 20 til 30 prósent af þeim fjölda flugferða sem var upphaflega á áætlun félagsins í vetur.
Þá hefur komið fram að bókanir séu mjög dræmar og fyrir nóvembermánuð sé aðeins
búið að bóka um 10% af þeim fjölda flugferða sem farþegar höfðu bókað í september í fyrra fyrir ferðatímabilið í nóvember.
„Við viljum halda flugmönnum og áhöfnum okkar áfram í vinnu og á launum en til þess þurfum við að fá mjög stóra fjárhagsaðstoð frá ríkisstjórnum til að það gangi upp“, segir
O´Leary.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.