flugfréttir

22 látnir í flugslysi í Úkraínu

- Antonov An-26 herflutningavél fórst með 28 manns um borð

25. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 21:46

28 manns voru um borð í flugvélinni sem fórst í kvöld og þar af sjö manna áhöfn

Að minnsta kosti 22 eru látnir í flugslysi eftir að úkraínsk herflutningaflugvél af gerðinni Antonov An-26 brotlenti skammt frá Kharkiv-herstöðinni nálægt borginni Chuhuiv í Úkraínu í kvöld.

Fram kemur að um borð hafi verið 21 nýliði í úkraínska flughernum frá Kharkiv-herskólanum ásamt sjö manna áhöfn og var flugvélin í æfingarflugi þegar hún brotlenti.

Slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan 18:00 í kvöld að íslenskum tíma og er aðeins vitað um tvo sem lifðu slysið af en þeir eru báðir með brunasár á
90 prósent líkamans.

Slysið átti sér stað í austurhluta Úkraínu í kvöld rétt fyrir klukkan 18:00 að íslenskum tíma

Búið er að ná 22 líkum af slysstað en ekki er vitað um afdrif fjögurra sem er saknað. Mikill eldur kom upp í flaki vélarinnar.

Forseti Úkraínu hefur sent samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra sem létust í slysinu í kvöld og óskað þeim sem lifðu af skjótum bata.

Verið er að senda flugslysasérfræðinga á vettvang til að hefja rannsókn á slysinu en orsök þess eru ókunn.

Flugvélin var herflutningavél af gerðinni Antonov An-26







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga