flugfréttir
South African hættir starfsemi enn og aftur
- Engir styrkir væntanlegir frá ríkisstjórn Suður-Afríku
Breiðþotufloti South African Airways á O.R. Tambo flugvellinum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku
Suður-afríska flugfélagið South African Airways hefur enn og aftur hætt allri starfsemi sem hefur verið fryst af stjórnendum félagsins sem fara fram á svigrúm til þess að endurskoða allan rekstur flugfélagsins.
Þetta þýðir að allur rekstur félagsins mun leggjast niður tafarlaust og engar flugferðir verða farnar á meðan reynt verður að bjarga starfseminni og endurskipuleggja reksturinn.
Um er að ræða enn einar aðgerðirnar sem verið er að grípa til eftir að ríkisstjórn Suður-Afríku
hefur verið mjög tvístígandi varðandi björgunaraðgerðir fyrir félagið en þann 21. júlí hafnaði
ríkisstjórnin viðsnúningsáætlun félagsins og neitaði að setja meira fé í rekstur South African Airways.
Þann 18. september sl. endurskoðaði ríkisstjórnin ákvörðun sína frá því í sumar og tilkynnti
að til stæði að setja 90 milljarða króna í rekstur félagsins en ákvörðun stjórnarinnar í dag um að
stöðva allan rekstur félagsins eru merki um að ríkisstjórnin hafi breytt enn og aftur um skoðun og ætli ekki að bjarga rekstri félagsins.
Seinast þegar South African Airways tilkynnti um rekstarstöðvun var í maí í vor en félagið hætti
samt ekki rekstrinum og hélt áfram að sinna áætlunarflugi en þess má geta að félagið sótti um
gjaldþrotavernd í desember í fyrra eftir að hafa verið rekið með tapi frá árinu 2012.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.