flugfréttir
Yfir 80 starfsmönnum sagt upp hjá Icelandair

„Þingvellir“, Boeing 757-300 þota Icelandair, á Keflavíkurflugvelli
Icelandair tilkynnti í dag um uppsagnir og hefur alls 88 starfsmönnum verið sagt upp núna um mánaðarmót.
Í tilkynningu segir að ástæðan sé vegna samdráttar í flugi til og frá landinu sem rekja má til
ferðatakmarkanna sem tóku í gildi í ágúst en eftirspurn eftir flugi bæði til og frá landinu hefur
verið í algjöru lágmarki vegna COVID-19 faraldursins.
Flestir þeirra sem hefur verið sagt upp eru flugmenn hjá félaginu og hefur 68 flugmönnum verið sagt
upp auk tuttugu annarra starfsmanna í ýmsum deildum félagsins.
Í yfirlýsingu segir að Icelandair standi frammi fyrir áframhaldandi óvissu á markaðnum
vegna kórónaveirufaraldursins en á móti sé staða félagins mjög sterk eftir niðurstöður
úr hlutafjárútboði félagsins sem fram fór fyrr í þessum mánuði.
Mjög fáar áætlunarflugferðir hafa farið um Keflavíkuflugvöll sl. daga og voru aðeins tvær
brottfarar í dag frá Keflavík, annars vegar flug á vegum Icelandair til Kaupmannahafnar og hinsvegar
flug á vegum easyJet sem fór til London Luton.


15. desember 2020
|
Vöruflutningarisinn FedEx Express hefur fengið afhenta sína fyrstu ATR skrúfþotu sem var sérstaklega smíðuð sem fraktflugvél en fyrirtækið hefur eingöngu haft ATR flugvélar í flotanum sem var breytt

28. desember 2020
|
Farþegum sem höfðu flogið með flugvél hjá flugfélaginu Buddha Air var mjög brugðið á dögunum er þeir gengu frá borði eftir innanlandsflug í Nepal og komust að því að þeir voru á allt öðrum stað miðað

25. nóvember 2020
|
Brasilísk flugmálayfirvöld hafa aflétt flugbanni yfir Boeing 737 MAX þotunum og er Brasilía því annað landið til að gefa aftur út flughæfnisvottun fyrir MAX þotunum á eftir Bandaríkjunum sem afléttu f

14. janúar 2021
|
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, er gestur í nýlegum þætti hjá Flugvarpinu þar sem hún fer yfir það helsta sem hefur verið að gerast hjá Icelandair á árinu 2020 sem var alls ekki g

14. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að draga sig af markaðnum er kemur að flugi yfir Atlantshafið og hætta við öll áform um áframhaldandi flug milli Evrópu og Norður-Ameríku auk þess sem flug

14. janúar 2021
|
Flugfélagið Emirates segir að svo gæti farið að félagið taki ekki við fyrstu Boeing 777X þotunni fyrr en árið 2024 en upphaflega stóð til að afhendingar á Boeing 777X þotunni myndu hefjast í fyrra.

14. janúar 2021
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A321 rakst utan í snjóskafl er hún var að aka í átt að flugbraut fyrir flugtak á flugvellinum í borginni Srinagar í Kashmir-héraði á Indlandi í gær.

13. janúar 2021
|
Flugfélagið Qatar Airways hefur tilkynnt um að allt bendi til þess að helmingurinn af öllum Airbus A380 risaþotum félagsins eigi ekki afturkvæmt í háloftin að loknum heimsfaraldri en fyrir áramót tal

12. janúar 2021
|
Boeing hefur náð samkomulagi við flugfélagið Atlas Air sem ætlar að panta fjórar júmbófraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en um er að ræða fjórar síðustu júmbó-þoturnar sem Boeing mun framleiða og

12. janúar 2021
|
Flugumferð um Heathrow-flugvöllinn í London hefur dregist það mikið saman að flugvöllurinn er ekki einu sinni lengur á lista yfir 30 stærstu flugvelli heims er kemur að fjölda flugtaka og lendinga.

12. janúar 2021
|
Tælenska flugfélagið Thai Airways segir að félagið hafi fjármagn til þess að halda sér á floti í fjóra mánuði til viðbótar og er séð fram á að flugfélagið nái að þrauka fram í apríl í vor.