flugfréttir
Óvíst um framtíð risaþotunnar í flota Etihad
- „Allt sem hefur fleiri en tvo hreyfla er ekki að virka fyrir okkur í dag“
Airbus A380 risaþota Etihad Airways í flugtaki á Heathrow-flugvellinum í London
Svo gæti farið að flugfélagið Etihad Airways mun losa sig við risaþotuna Airbus A380 fyrir fullt og allt en Tony Douglas, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að örlög risaþotunnar muni ráðast á næstunni.
Douglas segir að ekki sé búið að taka neina ákvörðun varðandi A380 en félagið hefur ekki flogið
risaþotunni frá því í maí í vor á þessu ári.
„Spurningin er hvort að þessi þota eigi eftir að fljúga aftur hjá félaginu. Eins og staðan er núna
þá er allt sem hefur fleiri en tvo hreyfla ekki að virka fyrir flugfélagið“, segir Douglas sem tekur
fram að risaþotan hafi of marga hreyfla til þess að skila flugfélaginu hagnaði eins og aðstæðurnar
eru í dag.
„Ég er ekki að útiloka Airbus A380. Það myndi brjóta hjartað í mér ef að það verður lokaniðurstaðan“, bætir
Douglas við en nefndir að hagkvæmari flugvélar hafa forgang í rekstrinum í dag.
Nefnir hann einnig að ef tveggja hreyfla þota á borð við Boeing 787 getur flogið sömu leið og dugar til miðað við eftirspurn
þá sé sú þota margfalt hagkvæmari upp á kílómetrafjölda á hvern farþega.
Douglas spáir því að heimsfaraldurinn eigi eftir að hraða endalokum Airbus A380 í heiminum
líkt og er að gerast með júmbó-þotuna, Boeing 747.
Þá gæti einnig farið svo að Etihad Airways muni ekki taka í notkun neina Airbus A350-1000 þotu aftur en félagið hafði pantað tuttugu eintök af lengstu Airbus A350 þotunni og hafa fimm verið afhentar sem allar eru komnar í geymslu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.