flugfréttir
Hafa ekki pláss fyrir fleiri flugvélar
- Flugvélageymslan í Alice Springs er uppiskroppa með pláss
Yfir 90 flugvélar eru komnar í flugvélageymsluna í Alice Springs og er aðeins laust pláss fyrir 16 flugvélar til viðbótar en þau eru öll uppbókuð
Flugvélageymslan í bænum Alice Springs í Ástralíu segist ekki geta tekið við fleiri flugvélum í geymslu þar sem svæðið sé nánast orðið fullt og búið að bóka þau fáu pláss sem eftir eru.
Fyrirtækið Asia Pacific Aircraft Storage (APAS) hefur tekið við miklum fjölda af stórum flugvélum sem flugfélög hafa fært til langtímageymslu vegna dræmrar eftirspurnar vegna COVID-19 faraldursins.
Nú þegar hafa 94 flugvélar verið færðar í geymslu í Alice Springs og þar á meðal flugvélar
frá flugfélögum á borð við Singapore Airlines, Cathay Pacific, Fiji Air, Scoot, Cathay Dragon, HG Express og Cebu Pacific og eru aðeins laus pláss fyrir sextán flugvélar til viðbótar en nú þegar er búið að bóka þau pláss.
„Fjöldi þeirra plássa sem flugfélögin hafa bókað og komið með til geymslu
sýnir vel hversu mikla erfiðleika flugfélögin eru að ganga í gegnum vegna faraldursins“, segir Tom Vincent, yfirmaður
hjá APAS, og tekur hann fram að fyrirtækið stefni á að fjölga núverandi stæðum úr 110 plássum upp í 200 pláss.
Risaþotur af gerðinni Airbus A380, Boeing 777 og Boeing 737 þotur eru meðal þeirra sem bíða betri daga í Alice Springs í Ástralíu
Til að ná að anna eftirspurninni hefur fyrirtækið boðið flugfélögum upp á að koma með flugvélar í geymslu
á flugvellinum Toowoomba Wellcamp en í augnablikinu eru aðeins tvær flugvélar þar í geymslu og pláss
fyrir fleiri flugvélar og er þegar von á fleiri vélum þangað í næstu viku.
Flugfélögin hafa kosið að velja Alice Springs þar sem þar ríkir þurrt eyðimerkurloftslag sem þýðir að lítil
hætta er á að flugvélar verði þar fyrir tæringu eða ryði á sama tíma og þær gangast reglulega undir
viðhaldsþjónustu og eftirlit sem nauðsynlegt er til að halda vélunum í viðunandi ástandi.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.