flugfréttir

United og American gætu þurft að segja upp 32.000 manns

1. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 19:22

Boeing 757-300 þota United Airlines í flugtaki á flugvellinum í Los Angeles og Boeing 767 breiðþota American Airlines í baksýn

Bandarísku flugfélögin United Airlines og American Airlines munu að öllum líkindum segja upp 32.000 starfsmönnum á næstu dögum eftir að ríkisstjórn Bandaríkjanna láðist að endurnýja áframhaldandi opinberan styrk til bandarískra flugfélaga.

Núverandi fjárhagsaðstoð til flugfélaganna rann út í dag, 1. október, og hafa stjórnvöld aðstoðað flugfélögin vestanhafs við að niðurgreiða launakostnað starfsmanna vegna COVID-19 faraldursins með sex mánaða fjárhagsaðstoð sem veitt var í mars á þessu ári.

Doug Parker, framkvæmdarstjóri American Airlines, segir að ef bandaríska þingið kemur ekki upp með aðstoð fyrir bandarísk flugfélög upp á 25 milljarða bandaríkjadali á næstu dögum þá þurfi félagið að segja upp 19 þúsund starfsmönnum.

United Airlines tekur í sama streng og segir að ef þingið samþykki frekari opinbera aðstoð í stað þeirrar sem rann út um mánaðarmótin þá geti félagið komist hjá því að segja upp 13.000 starfsmönnum.

Þingmenn innan bandaríska þingsins eru ekki vongóðir um að stjórnvöld muni samþykkja það háa aðstoð til flugfélaganna og er það talið frekar tæpt að það náist fyrir fimmtudag en ellegar munu tvö af stærstu flugfélögum Bandaríkjanna grípa til eina mestu uppsagna sem um getur í sögu félaganna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga