flugfréttir
Stefna á að fjúga til 124 áfangastaða fyrir lok ársins
Flugvélar Qatar Airways á flugvelinum í Doha í Qatar
Flugfélagið Qatar Airways ætlar sér að fljúga til 124 áfangastaða í leiðarkerfinu sínu fyrir lok þessa árs.
Félagið kynnti vetraráætlun sína núna fyrir helgi og er félagið bjartsýnt á að geta flogið til flestra þeirra áfangastaða sem félagið flaug til fyrir tíma kórónaveirufaraldursins en í janúar á þessu ári ætlaði Qatar Airways að fljúga til 177 áfangastaða árið 2020.
Nú þegar einhver lönd hafa hægt og rólega aflétt ferðatakmörkunum stefnir félagið á að byrja að hefja flug til fleiri áfangastaða í hverju landi fyrir sig sem afnemur takmarkanir á flugsamgöngum.
„Við erum stolt af því að vera það alþjóðaflugfélag sem farþegar geta treyst á að velja til að koma þeim hvert sem þeim langar á öruggan og áreiðanlegan hátt“, segir Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways.
Þeir 124 áfangastaðir sem Qatar Airways ætlar að fljúga til fyrir lok ársins 2020 deilast niður á 21 áfangastað í Afríku, tíu í Ameríku, 42 í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu, 38 í Evrópu og þrettán í Miðausturlöndum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.