flugfréttir

Segir að Malaysia Airlines gæti þurft að hætta starfsemi

10. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:12

Farþegaþotur Malaysia Airlines á flugvellinum í Kuala Lumpur í Malasíu

Framkvæmdarstjóri Malaysia Airlines segir að flugfélagið neyðist til þess að hætta starfsemi ef flugvélaleigur taki þá ákvörðun að samþykkja ekki nýja og endurgerða rekstaráætlun flugfélagsins.

Hópur af flugvélaleigum, sem Malaysia Airlines leigir flugvélar sínar af, segir að ekki komi til greina að samþykkja þær áætlanir sem flugfélagið hefur gert til að aðlagast breytingum í flugiðnaðinum vegna kórónaveirufaraldursins.

Izham Ismail, framkvæmdarstjóri Malaysia Airlines Group, segir að ef það sé raunin þá sé stutt í endalok Malaysia Airlines og hafi stjórnin því ekki nein önnur ráð nema að hætta starfseminni.

„Það eru lánadrottnar sem hafa nú þegar samþykkt rekstaráætlunina, sumir hafa ekki viljað gefa grænt ljós og svo eru aðrir á báðum áttum“, segir Izham sem tekur fram að hann verði að ná þeim hópi sem er tvístígandi til að fá samþykki.

Um 70% af flugflota félagsins eru tekinn á leigu en flugvélaleigufyrirtækin segja að ný rekstaráætlun sé óviðeigandi og ekki raunhæf.

Nýjasta rekstaráætlun Malaysia Airlines er gerð til fimm ára og gerir ráð fyrir að félagið nái sér á strik og fari að skila hagnaði árið 2023 og sé það gert með tilliti til þess að eftirspurn eftir farþegafugi í suðausturhluta Asíu nái sömu hæðum líkt og árið 2019 innan tveggja ára.

Þá er gert ráð fyrir að Malaysia Airlines fái nýtt fé inn í reksturinn frá aðalhluthafa félagsins sem er fjárfestingarsjóðurinn Khazanah Nasional og á það fé að aðstoða félagið við að þrauka næstu 18 mánuðina.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga