flugfréttir

Í viðræðum við Alaska Airlines um pöntun á fleiri MAX-þotum

10. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:48

Alaska Airlines hefur í dag yfir 160 Boeing 737 þotur í flota sínum

Sagt er að Boeing eigi nú í viðræðum við flugfélagið Alaska Airlines um mögulega pöntun í farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

Þetta er haft eftir þremur aðilum sem eru kunnugir málinu sem segja að Alaska Airlines sé að íhuga að leggja inn pöntun í Boeing 737 MAX um leið og flugvélarnar fá leyfi til þess að fljúga á ný.

Alaska Airlines á nú þegar inni pöntun hjá Boeing í 37 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 9 sem félagið pantaði árið 2018 en Alaska Airlines hefur yfir 160 Boeing 737 þotur í flota sínum sem margar eru komnar til ára sinna.

Ef pöntunin verður að veruleika væri um að ræða langþráðan byr undir báða vængi fyrir Boeing til þess að blása nýju lífi í pantanir í Boeing 737 MAX þotuna eftir yfir eins og hálfs árs kyrrsetningu.

Þá væri einnig um að ræða vissan áfanga í baráttu við Airbus sem hefur reynt að selja Alaska Airlines Airbus-þotur eftir að félagið tók yfir rekstri Virgin America árið 2016 og innleiddi á sama tíma yfir 50 Airbus A320 þotur í kjölfarið.

Boeing 737 flugflota Alaska Airlines í dag samanstendur af ellefu Boeing 737-700 þotum, 61 þotu af gerðinni 737-800, tólf 737-900 þotum og 79 af gerðinni Boeing 737-900ER.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga