flugfréttir
AirBaltic býður upp á skemmtiflugferð út í buskann
Airbus A220 þota airBaltic
Lettneska flugfélagið airBaltic hefur bæst við í hóp þeirra flugfélaga sem hafa boðið almenningi upp á að fljúga eitthvað út í buskann án neins áfangastaðar í þeim tilgangi að upplifa flug sér til skemmtunar.
AirBaltic ætlar að nota Airbus A220 þotu til flugsins og er brottför áætluð frá flugvellinum í Riga þann 25. október næstkomandi og er áætluaður flugtími um ein og hálf klukkustund.
Nú þegar er uppselt í flugið og var hægt að næla sér í flugmiða fyrir 26.000 krónur til að svala
ferðaþörf sinni á tímum kórónaveirufaraldursins.
Boðið verður upp á fjóra rétt um borð auk drykkjar og ef veður leyfir stendur til að fljúga lágt
og leyfa farþegum sjá sólarlagið lágt yfir jörðu en Martin Gauss, framkvæmdarstjóri airBaltic, segir
að það sé augljóst að fólk saknar þess að ferðast og fara í flugvél.
Það voru flugfélögin EVA Air og ANA (All Nippon Airways) sem byrjuðu fyrst á því í COVID-19 heimsfaraldurinum
að bjóða fólki upp á flugferðir án neins áfangastaðar og hafa viðbröðgin ekki látið á sér standa en
ANA hyggst á næstunni bjóða upp á þriðja skemmtiflugferðina.
Þá bauð ástralska flugfélagið Qantas einnig upp á sambærilega flugferð á dögunum þar sem flogið var yfir Ástralíu og seldist upp í þá flugferð á 10 mínútum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.