flugfréttir
KLM hættir með 747 eftir 9 daga
- Síðasta flug KLM með júmbó-þotunni lendir á Schiphol þann 25. október
Boeing 747 júmbó-þota KLM í lendingu á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam í Hollandi
Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines hefur tilkynnt síðustu áætlunarflugferðirnar með júmbó-þotunum sem verða teknar úr umferð síðar í þessum mánuði.
KLM hefur þrjár Boeing 747-400 þotur eftir í flotanum og tilkynnti félagið í apríl að til stæði að taka þær úr umferð í október vegna þeirra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft á rekstur félagsins en að öðru leyti stóð til að fljúga júmbó-þotunum áfram fram á næsta ár.
Síðasta júmbó-þotuflugið með Boeing 747-400 lendir á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam að morgni 25. október næstkomandi og er um að ræða flug KL894 frá Shanghai.
Að því loknu verða júmbó-þoturnar þrjár, sem bera skráningarnar PH-BFT, PH-BFV og PH-BFW, teknar úr notkun en KLM mun áfram hafa þrjár júmbó-fraktþotur í rekstri af gerðinni Boeing 747-400ERF
sem eru í flugrekstri hjá Martinair en fljúga undir nafni KLM Cargo.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.