flugfréttir

Eigandaskipti á framleiðslu og þjónustu fyrir Dornier 228

19. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 22:06

RUAG Aerospace tók yfir framleiðslu á Dornier Do 228 flugvélunum árið 2003 en nú mun General Atomics Europe taka yfir rekstrinum

Þýska fyrirtækið General Atomics Europe GmbH í Dresden ætlar sér að kaupa og taka yfir rekstur svissneska fyrirtækisins RUAG Aerospace sem í dag sér um framleiðslu á Dornier 228 flugvélunum auk viðhalds og varahlutaþjónustu.

Fram kemur að General Atomics Europe ætli að halda því starfsfólki sem starfar hjá RUAG Aerospace í verksmiðjunum í borginni Oberpfaffenhofen en með kaupunum mun General Atomics ná að auka markaðshlutdeild sína í flugvélaiðnaðinum.

General Atomics Europe segir í yfirlýsingu að fyrirtækið geri sér grein fyrir áhættunni sem fylgir því að ráðast í eins miklar fjárfestingar í fluginu á þessum tímum en tekið er fram að fyrirtækið sé vel í stakk búið til þess fjárhagslega.

RUAG Aerospace tók yfir framleiðslu á Dornier Do 228 flugvélunum árið 2003 og stóð til að koma með á markaðinn nýja kynslóð af vélinni sem kallaðist Dornier Do 228 NG og voru framleidd 8 eintök þar til hætt var við framleiðsluna árið 2013.

Dornier flugvélaframleiðandinn, sem varð gjaldþrota árið 2002, smíðaði 245 eintök af Do 228 flugvélunum en þá voru 125 eintök framleidd af fyrirtækinu Hindustan Aeronautics Limited (HAL) á Indlandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga