flugfréttir

Cathay Dragon hættir rekstri og 5.900 manns sagt upp

- Gamla Dragonair flugfélagið mun heyra sögunni til

21. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:52

Flugfloti Cathay Pacific og Cathay Dragon ásamt flugvélum frá fleiri flugfélögum á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong

Cathay Pacific Group hefur ákveðið að leggja niður flugfélagið Cathay Dragon, systurflugfélag Cathay Pacific, auk þess sem um 5.900 starfsmönnum verður sagt upp hjá báðum flugfélögunum.

Um 3.000 starfsmönnum hjá Cathay Dragon verður sagt upp og verður starfsemi félagsins sameinuð rekstri Cathay Pacific og mun merki og markaðsímynd Cathay Dragon leggjast niður.

Cathay Pacific mun taka yfir leiðarkerfi Cathay Dragon auk þess sem dótturfélagið HK Express mun einnig taka yfir einhverjar flugleiðir félagsins.

Cathay Dragon var 35 ára gamalt flugfélag, stofnað árið 1985 sem Dragonair, og hefur félagið haft 35 þotur í flota sínum sem allar eru af Airbus-gerð en félagið hafði m.a. 17 Airbus A320 og A321 þotur og átján Airbus A330-300 breiðþotur.

Við þennan niðurskurð og endalok Cathay Dragon munu um 5.300 starfsmenn munu missa vinnuna sína í Kína og 600 manns til viðbótar í öðrum löndum.

Þá hefur Cathay Pacific einnig ákveðið að fresta afhendingum á nýju Boeing 777X þotunum en félagið hefur pantað 21 eintak af Boeing 777-9. Fyrsta eintakið átti að afhendast til Cathay Pacific á næsta ári en félagið ætlar að fresta afhendingum til ársins 2024.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga