flugfréttir

Hefja aftur lengsta flug í heimi

- Singapore Airlines mun fljúga beint flug frá Singapore til New York JFK

21. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:40

Airbus A350 breiðþota Singapore Airlines

Singapore Airlines hefur tilkynnt að félagið ætli að hefja aftur lengsta áætlunarflug í heimi sem er flugleiðin á milli Singapore og John F. Kennedy flugvallarins í New York í Bandaríkjunum.

Fyrsta beina flugið frá Singapore til New York verður flogið þann 9. nóvember næstkomandi og verður flogið þrisvar í viku en bein fluglína milli borganna tveggja eftir stórbaugslínu mælist 15.338 kílómetrar og verður flogið nálægt norðurheimskautinu.

Singapore Airlines mun nota langdræga útgáfu af Airbus A350 þotunni til flugsins sem nefnist Airbus A350-900ULR en flugfélagið er eina félagið í heimi sem hefur fengið slíkar þotur afhentar frá Airbus og eru sjö þotur af þeirri gerð í flotanum.

Yfir 18 tíma flug með Airbus A350-900ULR breiðþotum

Félagið flaug áður til Newark-flugvallarins í New Jersey og var flugtíminn þá 18 klukkustundir og 25 mínútur en talið er að áætluður flugtími til Kennedy-flugvallarins verði 18 klukkutímar og 5 mínútur.

Fyrir kórónaveirufaraldurinn flaug Singapore Airlines til JFK-flugvallarins í New York en það var þá ekki í beinu flugi þar sem félagið hafði viðdvöl í Frankfurt í Þýskalandi.

Fram kemur að aðalástæða þess að félagið ákvað að byrja að fljúga aftur til New York sé vegna eftirspurnar eftir fraktflutningum og verður því hægt að bjóða upp á farþegaflug í leiðinni.

„Singapore Airlines finnur fyrir aukinni eftirspurn eftir fraktflutningum frá New York-svæðinu og þá sérstaklega frá fyrirtækjum sem eru í lyfjaiðnaði, tækniiðnaði og netverslunarviðskiptum“, segir í tilkynningu frá félaginu.

New York verður því annar áfangastaður Singapore Airlines í Bandaríkjunum í beinu flugi á tímum heimsfaraldursins en félagið hefur einungis flogið til Los Angeles í beinu flugi þessa daganna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga