flugfréttir
Búið að ganga frá sölu á Flybe
Flybe varð gjaldþrota í mars á þessu ári
Búið er að ganga frá sölu á merki og eigum breska lágfargjaldafélagsins Flybe sem varð gjaldþrota í mars á þessu ári.
Nýr eigandi er Thyme Opco, fyrirtæki sem tengist fjárfestingarsjóðnum Cyrus Capital, sem var einn stærsti
hluthafi í Flybe áður en félagið varð gjaldþrota og stendur til að koma flugfélaginu aftur í rekstur á næsta ári
en þó í mun smærri mynd til að byrja með.
Þær eignir sem eftir voru samanstóðu aðallega af skrifstofubúnaði, hugverki, markaðsímynd, leyfum ásamt
öðrum munum en búið var að skila inn flugrekstarleyfi félagsins þótt það var enn í gildi þann 7. september síðastliðinn.
Í yfirlýsingu frá Thyme Opco segir að þótt áform séu uppi um að koma Flybe aftur í loftið þá verði umsvif
félagsins mun minni heldur en þau voru áður en félagið hætti starfsemi. Fram kemur að til stendur að bjóða upp á nauðsynlegar
flugsamgöngur innan Bretlands og með því skapa fleiri störf í flugiðnaðinum.
Cyrus Capital var einn af þremur stærstu hluthöfum í Flybe ásamt Virgin Atlantic (Stobart Group) og Connect Airways
en í fyrra fór að halla undan rekstri félagsins á sama tíma og til stóð að breyta nafni félagsins í Virgin Connect og gera
félagið að tengiflugfélagi fyrir Virgin Atlantic. Flybe varð eitt af fyrstu flugfélögunum í Evrópu til þess að verða gjaldþrota
eftir að kórónaveirufaraldurinn hófst.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.