flugfréttir

Southwest íhugar Airbus A220

25. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:15

Boeing 737 þotur Southwest Airlines

Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur greint frá því að verið sé að skoða möguleikann á því að panta farþegaþotur frá Airbus.

Southwest Airlines hefur í yfir hálfa öld eingöngu haft Boeing 737 þotur í flota sínum auk þess sem sem félagið hafði nokkrar Boeing 727 þotur í 8 ár á níunda áratugnum en félagið hefur í dag 736 þotur af gerðinni Boeing 737-800 og Boeing 737-700.

Fram kemur að þrátt fyrir að stjórn Southwest sé staðráðin í að halda sig við þær 280 Boeing 737 MAX þotur, sem pantaðar hafa verið, þá sé félagið að endurskoða hvaða farþegaþotur koma til greina til að leysa af hólmi eldri Boeing 737-700 þotur í flotanum sem verða teknar út flotanum á næstu árum.

Flest bendir til að Boeing 737 MAX 7 verði fyrir valinu en félagið hefur nú þegar pantað 30 þotur af þeirri gerð og sé verið að vega og meta hvort að hentugast sé að panta fleiri slíkar þotur en félagið er einnig að skoða Airbus A220 þoturnar.

Southwest Airlines er einn traustasti viðskiptavinur Boeing af bandarísku flugfélögunum eftir að hafa verið með Boeing 737 frá því snemma á áttunda áratugnum. Í fréttum msn.com segir að ólíklegt sé að Southwest Airlines muni panta eitthvað annað en Boeing en ef svo verður þá væri um viss kaflaskipti að ræða fyrir Boeing að sjá Airbus-þotur í flota félagsins í litum Southwest.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga