flugfréttir
Koma til móts við flugfélög og lækka lendingargjöld
- Narita-flugvöllur lækkar gjöld og afnemur gjöld fyrir innanlandsflug
Boeing 767 breiðþota Japan Airlines á Narita-flugvellinum í Tókýó í Japan
Stjórn Narita-flugvallarins í Tókýó hefur ákveðið að lækka þjónustu- og lendingargjöld á flugvellinum til þess að koma til móts við flugfélög sem eiga flest hver erfitt uppdráttar á tímum kórónuveirunnar.
Lendingar- og afgreiðslugjöld verða felld niður fyrir þau flugfélög sem sinna innanlandsflugi í Japan auk þess sem gjöld fyrir þjónustu á stæðum og landgöngubrúm verða afnumin og þá verða lendingargjöld og önnur gjöld lækkuð fyrir flugfélög í millilandaflugi.
Narita-flugvöllurinn hefur lengi verið þekktur fyrir að hafa ein hæstu lendingargjöld af öllum flugvöllum heimsins og kostar allt upp í 980.000 krónur fyrir stóra þotu á borð við Boeing 747 að lenda á Tokyo Narita flugvellinum.
Aðgerðirnar verða gerðar afturvirkar til apríl í vor og verða þær í gildi, flugfélögum í hag, þar að til umsvif hvers flugfélags á Narita-flugvellinum nær 50% af því sem var árið 2019 og minnkar afslátturinn svo hlutfallslega eftir því sem bataferlið nær lengra hjá
viðkomandi flugfélagi.
„Við viljum gera allt til þess að viðhalda flugsamgöngum í landinu“, segir Akihiko Tamura, forstjóri rekstarfélagsins sem sér um Narita-flugvöllinn í Tókýó.
Fjöldi brottfarar- og komuflugs dróst saman um 64% um Narita-flugvöll frá apríl fram til september og 94% færri farþegar flugu um flugvöllinn á tímabilinu vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.