flugfréttir
Easyjet selur 9 þotur úr flotanum
- Seldar til tveggja fyrirtækja og teknar til baka á leigu
Airbus A320 þotur í flota easyJet
Breska lágfargjaldafélagið easyJet hefur gert samkomulag um sölu á níu Airbus A320 þotum sem seldar hafa verið til tveggja flugvélaleigufyrirtækja sem mun svo leigja vélarnar til baka til easyJet.
Félagið gerir þetta til þess að auka lausafjárstöðu félagsins vegna slæmrar afkomu í kórónaveirufaraldrinum en með sölunni á þotunum níu hefur easyJet náð að auka lausafé sitt um 55 milljarða króna.
Annars vegar er það írska flugvélaleigan Wilmington Trust SP Services
sem hefur keypt fimm Airbus A320 þotur fyrir 26 milljarða króna og
hinsvegar er það írska flugvélaleigan Sky High 112 Leasing Company
sem kaupir hinar fjórar A320 þoturnar fyrir 29 milljarða.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að easyJet selur þotur úr flotanum
til að leigja til baka frá því að COVID-19 faraldurinn hófst en í júní
í sumar seldi félagið sex Airbus A320neo þotur til SMBC Aviation
Company í Dublin fyrir 35 milljarða króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.