flugfréttir
Sex júmbó-þotur Lufhansa fastar í Hollandi
- Of þungar til þess að hefja sig á loft til að komast í niðurrif
Þrjár af þeim sex júmbó-þotum Lufthansa sem eru fastar á Twente-flugvellinum í Hollandi
Sex júmbó-þotur á vegum Lufthansa, sem eru af gerðinni Boeing 747-400, eru nú fastar á Twente-flugvellinum í Hollandi þar sem þær fá ekki að fara í loft frá flugvellinum þar sem þær eru of stórar er kemur að reglugerðum er varðar flugtök.
Lufthansa flaug júmbó-þotunum sex til Twente í júlí í sumar til að koma þeim í geymslu á meðan ekki var búið að ákveða
örlög flugvélanna en fyrirhugað var að fljúga þeim síðar til annars flugvallar til að fara í niðurrif.
„Það átti bara að leggja vélunum þarna þangað til að búið væri að ákveða hvað myndi verða um þær“, segir Meiltje de Groot, framkvæmdarstjóri
flugvallarins.
Vonast var til að hægt væri að rífa júmbó-þoturnar í Twente en nú hefur komið í ljós að það er ekki hægt og þurfa
þær því að fara annað til þess að verða rifnar í sundur.
Á meðan hafa flugmálayfirvöld ekki enn samþykt reglugerð um hámarksflugtaksþunga fyrir flugtök á flugvellinum í Twente sem þýðir
að júmbó-þoturnar eru of stórar samkvæmt reglugerðinni.
„Stórar þotur og breiðþotur geta aðeins lent á flugvellinum í Twente en aðeins til þess að fara í niðurrif. Lengd flugbrautarinnar
og brottfararaðferðir hafa ekki verið samþykktar sem þýðir að júmbó-þotur Lufthansa eru lagalega séð „fastar“ á flugvellinum.
Stjórn flugvallarins og hollensk flugmálayfirvöld eru nú að ræða hvaða lausn sé best í stöðunni og hvort hægt sé að finna
einhverja bráðabirgðalausn en flugvöllurinn hefur þegar hafist handa við að vinna að því að uppfylla kröfur er varðar brottflug
stórra flugvéla en ekki er vitað hvenær því verður lokið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.