flugfréttir
Mitsubishi sagt ætla að setja Spacejet-þotuna á hilluna

Til stendur að japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) fái fyrsta eintakið af SpaceJet afhent á næsta ári
Sagt er að japanski flugvélaframleiðandinn Mitsubishi Heavy Industries ætli að setja nýju farþegaþotuna SpaceJet á hilluna og gera hlé á framleiðslu þotunnar vegna dræmrar eftirspurnar og ástandsins í fluginu.
Þetta er haft eftir nokkrum aðilum sem eru kunnugir málinu sem segja að framleiðandinn sé nú
þegar búinn að biðja samstarfsaðila og birgja um að draga úr framleiðslu á íhlutum fyrir þoturnar
auk þess sem til stendur að fækka starfsfólki.
SpaceJet-þotan, sem hét upphaflega Mitsubishi Regional Jet (MRJ), er fyrsta tilraun Japana til
þess að framleiða farþegaþotu fyrir alþjóðamarkað og hefur þotan verið í 12 ár í þróun frá því
að verkefninu var ýtt úr vör árið 2008.
Nú þegar er orðin 7 ára seinkun á afhendingum þar sem afhendingu á fyrstu þotunni hefur
verið frestað sex sinnum auk þess sem kostnaður við þróun þotunnar er komin langt yfir
áætlaðan kostnað en í dag er búið að verja 1.350 milljörðum króna í verkefnið.
Til stóð að afhenda fyrstu þotuna til japanska flugfélagsins ANA (All Nippon Airways) árið 2013
en núverandi áætlun gerir ráð fyrir að ANA fái fyrsta eintakið árið 2021.
Fram kemur Mitsubishi Heavy Industries muni kynna þann 30. október næstkomandi áform sín varðandi þotuna og kemur þá í ljós hver áform fyrirtækisins eru.


8. desember 2020
|
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) eru nú að skoða hvort að flugmenn geti fengið þau bóluefni við kórónaveirunni sem eru við það að koma á markaðinn.

4. nóvember 2020
|
Mexíkanska flugfélagið Interjet, sem er annað stærsta flugfélagið í Mexíkó, þurfti að aflýsa öllu flugi fyrr í vikunni þar sem félagið hafði ekki efni á því að greiða fyrir þotueldsneyti.

3. desember 2020
|
Ryanair undirritaði í dag samning við Boeing um pöntun á 75 farþegaþotum til viðbótar af gerðinni Boeing 737 MAX.

14. janúar 2021
|
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, er gestur í nýlegum þætti hjá Flugvarpinu þar sem hún fer yfir það helsta sem hefur verið að gerast hjá Icelandair á árinu 2020 sem var alls ekki g

14. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að draga sig af markaðnum er kemur að flugi yfir Atlantshafið og hætta við öll áform um áframhaldandi flug milli Evrópu og Norður-Ameríku auk þess sem flug

14. janúar 2021
|
Flugfélagið Emirates segir að svo gæti farið að félagið taki ekki við fyrstu Boeing 777X þotunni fyrr en árið 2024 en upphaflega stóð til að afhendingar á Boeing 777X þotunni myndu hefjast í fyrra.

14. janúar 2021
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A321 rakst utan í snjóskafl er hún var að aka í átt að flugbraut fyrir flugtak á flugvellinum í borginni Srinagar í Kashmir-héraði á Indlandi í gær.

13. janúar 2021
|
Flugfélagið Qatar Airways hefur tilkynnt um að allt bendi til þess að helmingurinn af öllum Airbus A380 risaþotum félagsins eigi ekki afturkvæmt í háloftin að loknum heimsfaraldri en fyrir áramót tal

12. janúar 2021
|
Boeing hefur náð samkomulagi við flugfélagið Atlas Air sem ætlar að panta fjórar júmbófraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en um er að ræða fjórar síðustu júmbó-þoturnar sem Boeing mun framleiða og

12. janúar 2021
|
Flugumferð um Heathrow-flugvöllinn í London hefur dregist það mikið saman að flugvöllurinn er ekki einu sinni lengur á lista yfir 30 stærstu flugvelli heims er kemur að fjölda flugtaka og lendinga.

12. janúar 2021
|
Tælenska flugfélagið Thai Airways segir að félagið hafi fjármagn til þess að halda sér á floti í fjóra mánuði til viðbótar og er séð fram á að flugfélagið nái að þrauka fram í apríl í vor.