flugfréttir

Mitsubishi sagt ætla að setja Spacejet-þotuna á hilluna

28. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:21

Til stendur að japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) fái fyrsta eintakið af SpaceJet afhent á næsta ári

Sagt er að japanski flugvélaframleiðandinn Mitsubishi Heavy Industries ætli að setja nýju farþegaþotuna SpaceJet á hilluna og gera hlé á framleiðslu þotunnar vegna dræmrar eftirspurnar og ástandsins í fluginu.

Þetta er haft eftir nokkrum aðilum sem eru kunnugir málinu sem segja að framleiðandinn sé nú þegar búinn að biðja samstarfsaðila og birgja um að draga úr framleiðslu á íhlutum fyrir þoturnar auk þess sem til stendur að fækka starfsfólki.

SpaceJet-þotan, sem hét upphaflega Mitsubishi Regional Jet (MRJ), er fyrsta tilraun Japana til þess að framleiða farþegaþotu fyrir alþjóðamarkað og hefur þotan verið í 12 ár í þróun frá því að verkefninu var ýtt úr vör árið 2008.

Nú þegar er orðin 7 ára seinkun á afhendingum þar sem afhendingu á fyrstu þotunni hefur verið frestað sex sinnum auk þess sem kostnaður við þróun þotunnar er komin langt yfir áætlaðan kostnað en í dag er búið að verja 1.350 milljörðum króna í verkefnið.

Til stóð að afhenda fyrstu þotuna til japanska flugfélagsins ANA (All Nippon Airways) árið 2013 en núverandi áætlun gerir ráð fyrir að ANA fái fyrsta eintakið árið 2021.

Fram kemur Mitsubishi Heavy Industries muni kynna þann 30. október næstkomandi áform sín varðandi þotuna og kemur þá í ljós hver áform fyrirtækisins eru.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga