flugfréttir
COVID-19 hefur kostað Airbus einn milljarð evra
- Samt á góðri leið með því að aðlaga sig að breyttum aðstæðum

Frá verksmiðjum Airbus í Toulouse
Kórónaveirufaraldurinn hefur kostað flugvélaframleiðandann Airbus um 1 milljarð evra eða sem samsvarar 165 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í afkomuskýrslu sem Airbus birti í dag fyrir þriðja ársfjórðung þessa árs og kemur
þar fram að taprekstur Airbus sé um einn milljarður evra sem er þriðjungur af tapi Boeing sem skilaði
inn 3.5 milljarða dollara tapi á þriðja ársfjórðungi.
Airbus segir að þrátt fyrir að bataferlið í flugiðnaðinum sé mun hægari en gert var ráð fyrir þá sé framleiðandinn
á góðri leið með því að ná að aðlaga sig að ástandinu og spáir Airbus því að tapreksturinn muni stöðvast
næsta vor.
Airbus hefur samt sem áður náð að afhenda 145 nýjar flugvélar á þriðja ársfjórðungnum sem er meira
en Boeing hefur náð að afhenda á þessu ári en enn hefur Airbus ekki náð að afhenda 135 flugvélar sem eru
tilbúnar til afhendingar þar sem mörg flugfélög hafa farið fram á að fresta afhendingum.
Á öllu árinu hefur Airbus afhent um 300 minni farþegaþotur og 41 breiðþotu.
Tekjur Airbus á þriðja ársfjórðungi námu 11.2 milljörðum evra og tekjur á þessu ári nema 30 milljörðum evra sem er 35% lægri tekjur samanborið við fyrstu níu mánuði ársins í fyrra.


19. október 2020
|
Heimildir herma að fjársterkir aðilar og fjárfestingasjóður í Bretlandi ætli sér að gera tilraun til þess að endurvekja aftur starfsemi breska lágfargjaldarfélagsins Flybe og koma því aftur í loftið

28. desember 2020
|
Flugráðgjafarfyrirtækið ASM hefur verið fengið til þess að aðstoða við hönnun leiðarkerfis, áætlunargerð og stefnumótun í flugsamgöngum til og frá Grænlandi til næstu ára.

17. nóvember 2020
|
Wizz Air hefur tilkynnt um tvær nýjar flugleiðir sem til stendur að fljúga í innanlandsfluginu í Noregi fyrir lok ársins.

14. janúar 2021
|
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, er gestur í nýlegum þætti hjá Flugvarpinu þar sem hún fer yfir það helsta sem hefur verið að gerast hjá Icelandair á árinu 2020 sem var alls ekki g

14. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að draga sig af markaðnum er kemur að flugi yfir Atlantshafið og hætta við öll áform um áframhaldandi flug milli Evrópu og Norður-Ameríku auk þess sem flug

14. janúar 2021
|
Flugfélagið Emirates segir að svo gæti farið að félagið taki ekki við fyrstu Boeing 777X þotunni fyrr en árið 2024 en upphaflega stóð til að afhendingar á Boeing 777X þotunni myndu hefjast í fyrra.

14. janúar 2021
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A321 rakst utan í snjóskafl er hún var að aka í átt að flugbraut fyrir flugtak á flugvellinum í borginni Srinagar í Kashmir-héraði á Indlandi í gær.

13. janúar 2021
|
Flugfélagið Qatar Airways hefur tilkynnt um að allt bendi til þess að helmingurinn af öllum Airbus A380 risaþotum félagsins eigi ekki afturkvæmt í háloftin að loknum heimsfaraldri en fyrir áramót tal

12. janúar 2021
|
Boeing hefur náð samkomulagi við flugfélagið Atlas Air sem ætlar að panta fjórar júmbófraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en um er að ræða fjórar síðustu júmbó-þoturnar sem Boeing mun framleiða og

12. janúar 2021
|
Flugumferð um Heathrow-flugvöllinn í London hefur dregist það mikið saman að flugvöllurinn er ekki einu sinni lengur á lista yfir 30 stærstu flugvelli heims er kemur að fjölda flugtaka og lendinga.

12. janúar 2021
|
Tælenska flugfélagið Thai Airways segir að félagið hafi fjármagn til þess að halda sér á floti í fjóra mánuði til viðbótar og er séð fram á að flugfélagið nái að þrauka fram í apríl í vor.