flugfréttir

COVID-19 hefur kostað Airbus einn milljarð evra

- Samt á góðri leið með því að aðlaga sig að breyttum aðstæðum

29. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:558

Frá verksmiðjum Airbus í Toulouse

Kórónaveirufaraldurinn hefur kostað flugvélaframleiðandann Airbus um 1 milljarð evra eða sem samsvarar 165 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í afkomuskýrslu sem Airbus birti í dag fyrir þriðja ársfjórðung þessa árs og kemur þar fram að taprekstur Airbus sé um einn milljarður evra sem er þriðjungur af tapi Boeing sem skilaði inn 3.5 milljarða dollara tapi á þriðja ársfjórðungi.

Airbus segir að þrátt fyrir að bataferlið í flugiðnaðinum sé mun hægari en gert var ráð fyrir þá sé framleiðandinn á góðri leið með því að ná að aðlaga sig að ástandinu og spáir Airbus því að tapreksturinn muni stöðvast næsta vor.

Airbus hefur samt sem áður náð að afhenda 145 nýjar flugvélar á þriðja ársfjórðungnum sem er meira en Boeing hefur náð að afhenda á þessu ári en enn hefur Airbus ekki náð að afhenda 135 flugvélar sem eru tilbúnar til afhendingar þar sem mörg flugfélög hafa farið fram á að fresta afhendingum. Á öllu árinu hefur Airbus afhent um 300 minni farþegaþotur og 41 breiðþotu.

Tekjur Airbus á þriðja ársfjórðungi námu 11.2 milljörðum evra og tekjur á þessu ári nema 30 milljörðum evra sem er 35% lægri tekjur samanborið við fyrstu níu mánuði ársins í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga