flugfréttir
Nýstofnað flugfélag nýtir sér tækifæri í heimsfaraldrinum
- Heston Airlines í Litháen mun hefja leiguflug snemma á næsta ári
Heston Airlines mun byrja að fljúga leiguflug snemma á næsta ári
Stofnað hefur verið nýtt flugfélag í Litháen sem nefnist Heston Airlines og stendur til að félagið hefji reglubundið flug snemma á næsta ári.
Félagið mun sinna leiguflugi og stendur til að fljúga fyrir ferðaskrifstofur í Evrópu og eru áfangastaðirnir í Miðausturlöndum og í Afríku en félagið verður eingöngu með Airbus A320 þotur í flota sínum.
Heston Airlines vinnur nú að því að fá útgefið flugrekstarleyfi og ætlar félagið að byrja með þrjár Airbus A320 þotur en til stendur að félagið verði komið með sjö þotur í flotann fyrir árið 2022.
Í yfirlýsingu segir að COVID-19 hafi skapað einstakar aðstæður á markaðnum þar sem þörf er fyrir flugsamgöngur milli þeirra staða þar sem flugfélög hafa hætt áætlunarflugi vegna ástandsins og ferðatakmarkanna sem skapa tækifæri fyrir leiguflug sem kemur sér vél fyrir flugrekendur sem eru fljótir og sveiganlegir
til þess að hlaupa undir bagga.
Stofnandi félagsins er Heston Aviation sem sérhæfir sig í að fjárfesta í eldri Boeing 737 og Airbus A320 þotum auk þess sem fyrirtækið sinnir viðhaldi, viðgerðum, skoðunum auk annarrar þjónustu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.