flugfréttir
Lufthansa-flug frá Munchen lendir fyrst á BER
- Lufthansa og easyJet „opna“ Brandenburg-flugvöllinn á laugardag
Airbus A320 þotan „Neubrandenburg“ (D-AINZ) í lendingu á flugvellinum í Munchen í Þýskalandi þann 2. september sl.
Lufthansa verður fyrsta flugfélagið til að fljúga áætlunarflug til hins nýja Brandenburg-flugvallar í Berlín auk easyJet þegar flugvöllurinn opnar og verður formlega tekinn í notkun næstkomandi laugardag.
Það er flug LH2020 frá Munchen (MUC) til Berlín (BER) sem verður fyrsta flugið til að lenda
á flugvellinum og verður flugið flogið með Airbus A320neo þotu sem ber skráninguna D-AINZ
og heitir sú flugvél „Neubrandenburg“.
Áætluð lending er kl. 13:00 að staðartíma eða klukkan 12:00 að íslenskum tíma og hefur verið áætlað
að easyJet muni lenda einnig á sama tíma. Samkvæmt frétt Business Traveller þá kemur
fram að flugvélar Lufthansa og easyJet munu lenda samtímis á sitthvorri brautinni ef aðstæður leyfa.
Aðrar flugvélar sem munu lenda á flugvellinum nýja á laugardag er fimm flug á vegum
easyJet sem koma frá Fuertevertura, Paphos, Larnaca, Funchal og Tenerife.
Fyrsta brottförin frá Brandenburg-flugvellinum er áætluð daginn eftir, 1. nóvember, sem verður
flug easyJet til London Gatwick en alls eru 23 brottfarir áætlaðar frá Brandenburg-flugvelli
á sunnudag sem eru flug á vegum easyJet, Turkish Airlines og Qatar Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.