flugfréttir

Gert að greiða íbúum bætur vegna hávaða frá flugvélum

- Íbúar við flugvöllinn í Brussel segja að hávaða hafi aukist frá árinu 2004

29. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 22:05

Flugvél í lendingu á flugvellinum í Brussel í Belgíu

Dómstóll í Belgíu hefur skipað belgíska ríkinu til þess að greiða yfir 300 íbúum bæjarins Oostrand fleiri milljónir evra í skaðabætur vegna hávaða frá flugvélum í lendingu sem íbúarnir segjast hafa þurft að þola frá árinu 2004.

Um er að ræða gamalt mál sem hefur verið tekið fyrir oftar en einu sinni en íbúarnir búa í hverfunum Kraainem, Wezembeek-Oppem og Sint-Pieters Woluwe og segja þeir að hávaði frá flugvélum í lendingu fór að aukast í febrúar árið 2004 eftir að nýjar aðflugsleiðir að braut 01 voru teknar í notkun.

Í dómsmáli kemur fram að flugvélum hafi verið leyft að fljúga aðflugið yfir þéttbýl svæði þar sem um töluvert stutta flugbraut er að ræða og sé einnig mikill hávaða frá flugvélum þegar þær bremsa með afli frá hreyflunum.

Niðurstaða málsins er sú að belgíska ríkið hafi gert mistök þegar aðflugsferlum var breytt fyrir braut 02 (sem í dag nefnist braut 01 vegna breytinga á segulsviði jarðar) auk þess sem reglugerðum um hámarks hliðarvind var breytt sem varð til þess að braut 01 er mun meira notuð en hún var áður.

Fram kemur að notkun á braut 01/19 hefur næstum því tvöfaldast sl. ár en frá árinu 1997 til 2003 áttu sér stað 8.876 lendingar að meðaltali á ári á braut 01 en frá árunum 2004 til 2018 voru 15.759 lendingar skráðar á brautinni árlega að meðaltali.

Áfrýjunardómstóll hafði þegar komist að þeirri niðurstöðu árið 2017 að belgíska ríkið hefði gert mistök með breytingu á aðflugsferlum og var þar vitnað í grein úr mannréttindarsáttmála Evrópu og gildi það fyrir tímabilið 8. febrúar 2004 til 31. desember 2011 en dómurinn núna gildir fyrir tímabilið 1. janúar 2012 til 31. október 2018.

Dómurinn segir að hávaðinn sé yfir þeim mörkum sem sáttmála frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni kveður á um.

Íbúarnir fara fram á að belgísk flugmálayfirvöld breyti aftur reglum um hámarkshliðarvind svo hægt verði að auka notkun á öðrum flugbrautum og með því minnka notkunina á braut 01.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga