flugfréttir
Airbus afhendir tvær fyrstu A330-800neo þoturnar
- Kuwait Airways fyrsta flugfélagið til að fá minni tegundina af A330neo
Tvær fyrstu Airbus A330-800neo breiðþoturnar fyrir Kuwait Airways
Airbus hefur afhent tvær fyrstu Airbus A330-800neo þoturnar til flugfélagsins Kuwait Airways.
Kuwait Airways er fyrsta flugfélagið til þess að fá þessa flugvélategund
afhenta sem er minni gerðin af Airbus A330neo breiðþotunni.
A330-800 hefur ekki náð nærri því eins miklum vinsældum og stærri
gerðinni, A330-900, sem hefur verið pöntuð í 318 eintökum en aðeins
hafa verið pöntuð fjórtán eintök af Airbus A330-800.
Kuwait Airways pantaði átta A330neo þotur í október árið 2018 en
þessar tvær fyrstu þotur lögðu af stað í afhendingarflugið í dag frá Toulouse í Frakklandi áleiðis til Kúveitborgar.
Af þeim fjórtán A330-800neo þotum sem hafa verið pantaðar fyrir utan
þoturnar átta sem Kuwait Airways hefur pantað, þá hefur Uganda Airways
pantað tvær og þá er óþekktur viðskiptavinur sem hefur pantað fjögur eintök.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.