flugfréttir

Brandenburg-flugvöllur formlega tekinn í notkun í dag

- Airbus A320neo þotur frá easyJet og Lufhansa fyrstar til að lenda

31. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 19:42

Slökkviliðsbílar mynduðu heiðursboga fyrir Airbus A320neo þoturnar tvær frá easyJet og Lufthansa sem voru fyrsta til þess að lenda á Brandenburg-flugvellinum eftir opnunina

Nýi Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín var formlega opnaður í dag og tekinn í notkun næstum því 10 árum á eftir áætlun.

Það var Airbus A320neo þota frá easyJet sem var fyrsta flugvélin til þess að lenda á Brandenburg-flugvelli eftir opnunina í dag og í kjölfarið lenti Airbus A320neo þota frá Lufthansa, flug LH2020, sem kom frá Munchen.

Upphaflega stóð til að vélar easyJet og Lufthansa myndu lenda samtímis hlið við hlið á sitthvorri flugbrautinni en vegna slæms veðurs þurfti að hætta við þau áform.

Dagurinn í dag er dagur sem margir Þjóðverjar héldu að myndi aldrei renna upp þar sem búið var að fresta opnun Brandenburg-flugvallarins svo oft að á tímabili var hætt við að gefa út fleiri opnunardagsetningar þar sem erfitt reyndist að standa við þær.

Flugvélar easyJet og Lufthansa í lendingu á Brandenburg
flugvelli í dag

Framkvæmdarstjórar easyJet og Lufthansa voru um borð í sitthvorri flugvélinni en þessi tvö flugfélög verða þau umsvifamestu á flugvellinum nýja.

Á meðan easyJet flaug frá Munchen með Carsten Spohr, framkvæmdarstjóra félagsins um borð, auk 40 annarra boðsgesta þau flaug þota easyJet mun styttri vegalengd þar sem hún hóf sig á loft frá Tegel-flugvellinum í Berlín sem er staðsettur í 26 kílómetra fjarlægð norðvestur af Brandenburg-flugvelli en flugvélinni var sérstaklega flogið til Tegel-flugvallarins frá London Gatwick sl. fimmtudag fyrir opnunarflugið.

Umhverfissinnar mótmæltu

Mótmæli meðal umverfissinna settu blett á opnunardaginn þar sem hópur samtakanna „Stay on the Ground“ kom sér saman inni í flugstöðinni auk þess sem einhverjir klifruðu upp á þakið á flugstöðinni og þurfti að kalla kalla til lögreglu til að fjarlægja mótmælendur af þakinu.

Fyrsta áætlunarflugið á Brandenburg-flugvellinum lenti síðan nú undir kvöld sem var flug á vegum easyJet sem kom frá Fuerteventura á Kanaríeyjum. Fyrsta brottförin verður síðan í fyrramálið sem er flug easyJet til London Gatwick en þá mun Qatar Airways og Turkish Airlines einnig byrja að fljúga um BER á morgun.

Mótmælendur komu sér fyrir inni í flugstöðinni í dag

Þá mun áætlunarflugferðum fjölga jafnt og þétt næstu daga og vikur og fleiri flugfélög bætast í hópinn en til að mynda mun Air France byrja að fljúga um BER þann 8. nóvember næstkomandi og færa sig af Tegel-flugvellinum í Berlín sem lokar sama dag.

Farið um borð í þotu easyJet fyrir hið stutta flug frá Tegel-flugvelli yfir til nýja Brandenburg-flugvallarins









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga