flugfréttir

Spartan pantar 32 kennsluvélar frá Piper Aircraft

2. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:06

Piper Archer kennsluflugvélar frá Spartan flugskólanum

Bandaríski flugskólinn Spartan College of Aeronautics and Technology hefur gert samning við flugvélaframleiðandann Piper Aircraft um kaup á 32 flugvélum sem verða notaðar til flugkennslu.

Flugvélarnar verða afhentar til flugskólans sem staðsettur er í Tulsa í Oklahoma en þess má geta að flugskólinn tók á dögunum við fimm þúsundustu Piper Archer flugvélinni sem Piper hefur framleitt frá upphafi en sú flugvél var ein af þeim 22 kennsluvélum sem skólinn hafði pantað áður.

Spartan flugskólinn hefur í dag 45 kennsluvélar í flota sínum sem samanstendur af flugvélum af gerðinni Piper Archer, Piper Seminole, Cessna 152 og Cessna 172.

Spartan flugskólinn var stofnaður árið 1928 og er hann einn af elstu flugskólum Bandaríkjanna en yfir 100.000 flugmenn og flugvirkjar hafa stundað nám við skólann frá meira en 60 löndum í heiminum.

Auk flugnáms þá býður flugskólinn upp á nám í flugvirkjun, viðhaldsskoðunum, flugraftæknifræði, gæðastjórnun og tæknistjórnun.

Þann 28. október sl. tók Spartan flugskólinn við fimm þúsundustu Piper Archer flugvélinni sem Piper Aircraft hefur framleitt frá upphafi







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga