flugfréttir

Nýtt flugfélag stofnað í Danmörku

- Airseven mun hefja leiguflug fyrir lok ársins með Boeing 737-400 þotum

3. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:12

Önnur Boeing 737-400 þotan var um mánaðarmótin máluð í litum Airseven á flugvellinum í East Midlands á Englandi

Nýtt flugfélag hefur verið stofnað í Danmörku sem nefnist Airseven en félagið stefnir á að hefja leiguflug fyrir lok ársins.

Airseven ætlar að byrja með tvær Boeing 737-400 þotur en flugfélagið er stofnað í samstarfi við dönsku ferðaskrifstofuna Primo Tours, Copenhagen Air Taxi og Klaus Ren, fyrrum stofnandi danska flugfélagsins Jet Time, sem verður framkvæmdarstjóri Airseven.

Copenhagen Air Taxi mun annast flugreksturinn á sínu flugrekstarleyfi en Boeing 737-400 þoturnar tvær bera skráninguna OY-ASA og OY-ASB og voru þær framleiddar árið 1990 og 1992.

Önnur Boeing 737-400 þotan flaug upphaflega í flota Lufthansa og hefur síðan þá einnig flogið fyrir Sun Express, Air Italy og Blue Air á meðan hin þotan var afhent til norska flugfélagsins Braathens á sínum tíma en hefur einnig flogið fyrir SAS og Blue Air.

Skjáskot af vefsíðu flugfélagsins, airseven.dk

Nú þegar búið að mála aðra þotuna í litum Airseven en sú vinna fór fram hjá fyrirtækinu Airbourne Colours á flugvellinum í East Midlands á Englandi.

Klaus Ren segir að flugfélagið sé að byrja að leita að starfsfólki í stjórnunarstörf og síðar verði hafist handa við að ráða starfsfólk til flugfélagsins.

Talið er að Airseven, sem verður með bækistöðvar á flugvellinum í Hróarskeldu, muni skapa yfir 100 störf í fluginu í Danmörku á næstunni og þar af 50 stöðugildi sem munu tengjast rekstri félagsins óbeint.

„Þetta kann að vera undarlegir tímar til þess að stofna nýtt flugfélag en við höfum trú á því að það sé pláss fyrir lítil flugfélög og þá sérstaklega þau sem eru sveigjanleg“, segir Bjarke Hansen, framkvæmdarstjóri Primo Tours.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga