flugfréttir

Um 3.000 farþegar á dag um Brandenburg fyrstu daganna

- Flugumferð um nýja flugvöllinn í Berlín mun aukast strax í næstu viku

3. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:55

Farþegar í röð við innritun á nýja Brandenburg-flugvellinum

Um 3.000 farþegar fóru um nýja Brandenburg-flugvöllinn sl. sunnudag, daginn eftir að völlurinn opnaði, og er gert ráð fyrir svipuðum farþegafjölda á dag í þessari viku.

Þótt að flugumferð um nýja Brandenburg-flugvöllinn byrji hægt og rólega eftir að hann var formlega tekinn í notkun þann 31. október sl. þá mun umferð um flugvöllinn aukast næstu daganna.

Í dag, 3. nóvember, eru 41 brottför áætluð frá BER til 21 áfangastaðar á vegum 10 flugfélaga sem eru Eurowings, FlexFlight, Turkish Airlines, Ryanair, easyJet, Georgian Airways, Wizz Air, Sun Express, Pegasus Airlines og Qatar Airways.

Áfangastaðirnir sem flogið er til í dag eru Karlsruhe, London Gatwick, Faro, Stuttgart, Köln, Aþena, London Stansted, Dusseldorf, Madrid, Tenerife (South), Madeira, Tbilisi, Búdapest, Manchester, Antalya, Sofia, Istanbul, Tirana, Doha, Mílanó og Varna.

Fram kemur að í næstu viku munu áfangastöðunum fjölga í 83 flugleiðir en þeir sem munu hafa mestu tíðnina er Munchen, Frankfurt, Stuttgart og Köln.

Í 4. sæti kemur sá áfangastaður sem mest verður flogið til í millilandaflugi sem er Schiphol-flugvöllurinn í Amsterdam og því næst Vín, London Heathrow, Zurich og París Charles de Gaulle í 10. sæti.

Kaupmannahöfn verður eini áfangastaðurinn sem fleiri en tvö flugfélög munu fljúga til en SAS, easyJet og Norwegian munu öll fljúga frá Brandenburg-flugvellinum til Kaupmannahafnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga