flugfréttir
Syðri flugbrautin tekin í notkun á Brandenburg-flugvelli

Airbus A350-900 þota frá Qatar Airways fær höfðinglegar móttökur eftir lendingu á syðri flugbrautinni á Brandenburg-flugvellinum í morgun
Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín hefur tekið í notkun syðri flugbrautina á flugvellinum og var Airbus A350-900 breiðþota frá Qatar Airways fyrsta flugvélin til þess að lenda á þeirri braut í morgun.
Brandenburg-flugvöllurinn hefur tvær flugbrautir sem liggja samsíða hvor annarri sem nefnast 07L/35R og
07R/25L en til stóð að nota syðri brautina sl. laugardag þegar flugvöllurinn opnaði og átti þota easyJet
að lenda á henni samtímis og þota frá Lufthansa myndi lenda á nyrðri brautinni en sökum veðurs þurfi
að hætta við samhliða lendingu.
Syðri brautin er 4.000 metrar á lengd eða 400 metrum lengri en nyrðri brautin en Airbus A350 þotan
frá Qatar Airways þurfti aðeins að nota helminginn af þeirri lengd þegar hún lenti í morgun í Berlín kl. 9:50.
Með syðri brautinni verður hægt að koma til móts við þá flugumferð sem gert er ráð fyrir að eigi eftir að fara
um Brandenburg-flugvöllurinn þegar eftirspurn eftir farþegaflugi eykst eftir heimsfaraldurinn.


23. nóvember 2020
|
Starfsemi flugvélaframleiðslunnar hjá GippsAero hefur verið hætt en þetta kemur fram í tilkynningu frá indverska flugvélaframleiðandanum Mahindra Aerospace.

7. nóvember 2020
|
Breska flugmannafélagið BALPA hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið ráðleggur þeim einstaklingum frá því að leggja flugið fyrir sig og vara við því að hefja flugnám vegna ástandsins í flugin

22. október 2020
|
Langflestir þeir nemendur sem sækja nám hjá Keili leggja stund á atvinnuflugmannsnám en starfsfólk hjá mennta- og þjónustusviði Keilis tók nýverið saman tölulegar upplýsingar um nemendur hjá skólanum.

14. janúar 2021
|
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, er gestur í nýlegum þætti hjá Flugvarpinu þar sem hún fer yfir það helsta sem hefur verið að gerast hjá Icelandair á árinu 2020 sem var alls ekki g

14. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að draga sig af markaðnum er kemur að flugi yfir Atlantshafið og hætta við öll áform um áframhaldandi flug milli Evrópu og Norður-Ameríku auk þess sem flug

14. janúar 2021
|
Flugfélagið Emirates segir að svo gæti farið að félagið taki ekki við fyrstu Boeing 777X þotunni fyrr en árið 2024 en upphaflega stóð til að afhendingar á Boeing 777X þotunni myndu hefjast í fyrra.

14. janúar 2021
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A321 rakst utan í snjóskafl er hún var að aka í átt að flugbraut fyrir flugtak á flugvellinum í borginni Srinagar í Kashmir-héraði á Indlandi í gær.

13. janúar 2021
|
Flugfélagið Qatar Airways hefur tilkynnt um að allt bendi til þess að helmingurinn af öllum Airbus A380 risaþotum félagsins eigi ekki afturkvæmt í háloftin að loknum heimsfaraldri en fyrir áramót tal

12. janúar 2021
|
Boeing hefur náð samkomulagi við flugfélagið Atlas Air sem ætlar að panta fjórar júmbófraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en um er að ræða fjórar síðustu júmbó-þoturnar sem Boeing mun framleiða og

12. janúar 2021
|
Flugumferð um Heathrow-flugvöllinn í London hefur dregist það mikið saman að flugvöllurinn er ekki einu sinni lengur á lista yfir 30 stærstu flugvelli heims er kemur að fjölda flugtaka og lendinga.

12. janúar 2021
|
Tælenska flugfélagið Thai Airways segir að félagið hafi fjármagn til þess að halda sér á floti í fjóra mánuði til viðbótar og er séð fram á að flugfélagið nái að þrauka fram í apríl í vor.