flugfréttir

Syðri flugbrautin tekin í notkun á Brandenburg-flugvelli

4. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:05

Airbus A350-900 þota frá Qatar Airways fær höfðinglegar móttökur eftir lendingu á syðri flugbrautinni á Brandenburg-flugvellinum í morgun

Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín hefur tekið í notkun syðri flugbrautina á flugvellinum og var Airbus A350-900 breiðþota frá Qatar Airways fyrsta flugvélin til þess að lenda á þeirri braut í morgun.

Brandenburg-flugvöllurinn hefur tvær flugbrautir sem liggja samsíða hvor annarri sem nefnast 07L/35R og 07R/25L en til stóð að nota syðri brautina sl. laugardag þegar flugvöllurinn opnaði og átti þota easyJet að lenda á henni samtímis og þota frá Lufthansa myndi lenda á nyrðri brautinni en sökum veðurs þurfi að hætta við samhliða lendingu.

Syðri brautin er 4.000 metrar á lengd eða 400 metrum lengri en nyrðri brautin en Airbus A350 þotan frá Qatar Airways þurfti aðeins að nota helminginn af þeirri lengd þegar hún lenti í morgun í Berlín kl. 9:50.

Með syðri brautinni verður hægt að koma til móts við þá flugumferð sem gert er ráð fyrir að eigi eftir að fara um Brandenburg-flugvöllurinn þegar eftirspurn eftir farþegaflugi eykst eftir heimsfaraldurinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga