flugfréttir

Eiga varla fyrir eldsneyti á þoturnar

- Skulda yfir 7 milljarða króna í reikning fyrir þotueldsneyti

4. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 18:04

Sukhoi Superjet 100 þotur í flota Interjet

Mexíkanska flugfélagið Interjet, sem er annað stærsta flugfélagið í Mexíkó, þurfti að aflýsa öllu flugi fyrr í vikunni þar sem félagið hafði ekki efni á því að greiða fyrir þotueldsneyti.

Interjet felldi niður allt áætlunarflug frá 1. til 3. nóvember en hefur nú hafið flug að nýju en flugvallarfyrirtækið Aeropuertos y Servicios Auxiliares (ASA) sagði að lokað hefði verið fyrir aðgang að eldsneyti þar sem flugfélagið hafði ekki tök á að greiða fyrir eldsneyti.

Interjet skuldar í dag 7.7 milljarða króna reikning fyrir eldsneyti og hefur flugfélagið síðan þá þurft að greiða fyrirfram fyrir eldsneyti en eftir að flugfélagið gat heldur ekki greitt fyrir fram um helgina voru þær fjórar þotur, sem félagið hefur í rekstri í dag, kyrrsettar.

Eftir að félagið náði að greiða fyrir eldsneyti í gær gat Interjet haldið áfram áætlunarflugi frá Mexíkóborg til sex áfangastaða í landinu.

Hópur starfsmanna Interjet mætti sama dag fyrir framan höfuðstöðvar félagsins til þess að mótmæla því að það hafi ekk fengið greidd laun í langan tíma og kom Alejandro del Valle, einn af fjárfestum flugfélagsins, út til starfsmanna og greindi þeim frá því að félagið væri í það miklum vandræðum að það ætti „varla fyrir eldsneyti á flugvélarnar“.

Alejandro segir að Interjet eigi nú í viðræðum við skattayfirvöld í Mexíkó varðandi skuldir þess sem þarf að semja um áður en félagið getur fengið fjárhagsaðstoð frá mexíkóska ríkinu.

Interjet hefur „tæknilega“ verið gjaldþrota frá árinu 2019 og þurfti að skila öllum Airbus A320 þotum sínum aftur til eiganda og byrja aftur að nota Sukhoi Superjet 100 þoturnar sem félagið ætlaði að skila til framleiðandans. Félagið hefur 22 Sukhoi-þotur í flotanum en er aðeins að fljúga fjórum þotum í dag vegna heimsfaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga