flugfréttir
Engin teljandi aukning á flugfarþegum í heiminum
- Aðeins 2.4% fjölgun farþega í september miðað við ágústmánuð
Enn er tómlegt um að lítast á mörgum flugstöðvum í heiminum þar sem farþegaflug hefur enn ekki náð sér á strik
Farþegaflug í heiminum mælist enn um 70 prósent lægra á milli ára en samkvæmt tölfræði Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA) þá var fjöldi flugferða með farþega 72.8% lægri í september sl. samanborið við september árið 2019.
Þetta er samt smá aukning milli ára frá því í ágúst en þá var 75.2% minni
flugumferð í farþegaflugi m.a.v. ágúst árið 2019 sem er aukning sem samsvarar 2.4 prósentum. Þá var framboð á farþegaflugi í september um 37% af því framboði sem var í september í fyrra.
Eftirspurn eftir flugsætum í millilandaflugi í heiminum í september
var aðeins 12 prósent af því sem var í september í fyrra og hafði
því dregist saman um 88% á meðan 43.3 prósenta samdráttur
varð í innanlandsflugi.
Í yfirlýsingu frá IATA segir að bataferlið í farþegaflugi sé ennþá
staðnað og lítil aukning hafi orðið á eftirspurn sem rekja má
til sóttvarnaraðgerða, ferðatakmarkanna og reglna um sóttkví í flestum
löndum Evrópu og í Bandaríkjunum.
Þá segir að flugfélögin séu ekki að ná að lækka rekstrarkostnað sinn
til að bæta upp fyrir þær litlu tekjur sem er að hafa frá þeim fáu
farþegum sem eru að fljúga í dag. Talið er að þessi lægð í fluginu hafi áhrif á 4.8 milljón störf sem tengjast fluginu í heiminum og 46 milljónir starfa sem tengjast fluginu með óbeinum hætti.
IATA hvetur enn og aftur ríkisstjórnir til þess að endurskoða reglugerðir
varðandi COVID-19 heimsfaraldurinn til að forðast efnahagslegt stórslys
sem skapast ef ástandið heldur áfram eins og það er í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.