flugfréttir
Sagt að Boeing 737 MAX 10 frestist um 2 ár

Boeing 737 MAX 10 tilraunarþota í Renton í mars í vor
Sagt er að Boeing sé búið að ákveðið að fresta framleiðslu á Boeing 737 MAX 10 þotunni sem er lengsta útgáfan af 737 MAX vélunum.
Þetta er haft eftir Michael O´Leary, framkvæmdarstjóra írska lágfargjaldafélagsins Ryanair, sem segir að þetta hafi verið
tilkynnt á myndbandsfundi við þá viðskiptavini sem eiga von á Boeing 737 MAX þotunum.
Einn af talsmönnum Boeing segist ekki vilja staðfesta hvort að breyting hafi verið gerð á framleiðsluáætlun vegna Boeing 737 MAX 10
en sagt er að framleiðandinn ætli að fresta afhendingum um tvö ár.
O´Leary segir að Boeing sé ekki í stöðu til að hafa neinar viðræður vegna pantanna í Boeing 737 MAX 10 í augnablikinu
þar sem búið er að slá afhendingum á frest í að minnsta kosti tvö ár en til stóð að afhenda fyrstu 737 MAX 10 þotuna á þessu ári.
Alls hafa 17 flugfélög pantað 483 eintök af Boeing 737 MAX 10 þotunni sem samsvarar 11% af öllum þeim MAX-þotum sem pantaðar
hafa verið.


1. desember 2020
|
Desember gæti orðið örlagaríkur mánuður fyrir Norwegian þar sem framtíð félagsins gæti skýrst betur þar sem tvö aðskilin mál verða tekin fyrir dómstólum beggja megin Atlantshafsins.

9. nóvember 2020
|
Svo gæti farið að öllum flugfélögum í Pakistan verði bannað að fljúga til 188 landa í heiminum eða allra þeirra landa sem eru meðlimir í Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO).

4. nóvember 2020
|
Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín hefur tekið í notkun syðri flugbrautina á flugvellinum og var Airbus A350-900 breiðþota frá Qatar Airways fyrsta flugvélin til þess að lenda á þeirri braut í morgun.

14. janúar 2021
|
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, er gestur í nýlegum þætti hjá Flugvarpinu þar sem hún fer yfir það helsta sem hefur verið að gerast hjá Icelandair á árinu 2020 sem var alls ekki g

14. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að draga sig af markaðnum er kemur að flugi yfir Atlantshafið og hætta við öll áform um áframhaldandi flug milli Evrópu og Norður-Ameríku auk þess sem flug

14. janúar 2021
|
Flugfélagið Emirates segir að svo gæti farið að félagið taki ekki við fyrstu Boeing 777X þotunni fyrr en árið 2024 en upphaflega stóð til að afhendingar á Boeing 777X þotunni myndu hefjast í fyrra.

14. janúar 2021
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A321 rakst utan í snjóskafl er hún var að aka í átt að flugbraut fyrir flugtak á flugvellinum í borginni Srinagar í Kashmir-héraði á Indlandi í gær.

13. janúar 2021
|
Flugfélagið Qatar Airways hefur tilkynnt um að allt bendi til þess að helmingurinn af öllum Airbus A380 risaþotum félagsins eigi ekki afturkvæmt í háloftin að loknum heimsfaraldri en fyrir áramót tal

12. janúar 2021
|
Boeing hefur náð samkomulagi við flugfélagið Atlas Air sem ætlar að panta fjórar júmbófraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en um er að ræða fjórar síðustu júmbó-þoturnar sem Boeing mun framleiða og

12. janúar 2021
|
Flugumferð um Heathrow-flugvöllinn í London hefur dregist það mikið saman að flugvöllurinn er ekki einu sinni lengur á lista yfir 30 stærstu flugvelli heims er kemur að fjölda flugtaka og lendinga.

12. janúar 2021
|
Tælenska flugfélagið Thai Airways segir að félagið hafi fjármagn til þess að halda sér á floti í fjóra mánuði til viðbótar og er séð fram á að flugfélagið nái að þrauka fram í apríl í vor.