flugfréttir
Mögulegt að pakistönsk flugfélög verði bönnuð í 188 löndum
Komið hefur í ljós að yfir 260 flugmenn í Pakistan hafa verið að fljúga atvinnuflug með ógild eða fölsuð skírteini
Svo gæti farið að öllum flugfélögum í Pakistan verði bannað að fljúga til 188 landa í heiminum eða allra þeirra landa sem eru meðlimir í Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO).
Ástæðan er vegna þeirra vandamála sem hafa komið upp er varðar útgáfu á flugmannsskírteinum meðal pakistanskra flugmanna en í ágúst kom í ljós að 262 flugmenn í Pakistan voru að fljúga atvinnuflug með ógild eða fölsuð skírteini og þar af 141 hjá flugfélaginu PIA auk þess sem margir voru uppvísir að því að hafa svindlað á prófum.
PIA (Pakistan International Airlines) er nú þegar bannað að fljúga til Bretlands auk þess sem EASA hefur bannað félaginu að fljúga til Evrópu en nú hefur Alþjóðaflugmálastofnunin sent
pakistönskum flugmálayfirvöldum bréf þar sem fram kemur að yfirvöld í Pakistan séu ekki að ná að uppfylla alþjóðaskilmála er varðar útgáfu á skírteinum
auk þjálfunnar á flugmönnum.
Í bréfinu segir að um mjög alvarlega bresti sé að ræða með tilliti til flugöryggis og eigi flugfélög í Pakistan á hættu á að þeim verði bannað að fljúga til
188 landa í heiminum á meðan flugmálum í landinu er eins ábótavant og raun ber vitni.
„Þetta getur haft hræðilegar afleiðingar í för með sér og miklar afleiðingar fyrir flugiðnaðinn í Pakistan. Við höfðum áhyggjur af þessu í júní en flugmálayfirvöld í landinu hunsuðu ábendingar okkar um þetta“, segir í yfirlýsingu frá félag pakistanskra atvinnuflugmanna vegna málsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.