flugfréttir

Allt fé uppurið hjá stærsta lágfargjaldafélagi Mexíkó

- Ráðleggja farþegum að bóka ekki flug með Interjet

9. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:54

Ein af Sukhoi Superjet 100 þotum frá Interjet

Almenningi í Mexíkó hefur verið varað við því að bóka flug með mexíkóska flugfélaginu Interjet þar sem sagt er að flugfélagið eigi gott sem engan pening lengur til þess að standa í flugrekstri.

Flugfélagið þurfti í síðustu viku að fella niður flug í tvo daga í röð þar sem félagið átti ekki fyrir þotueldsneyti en félagið hefur þurft að greiða allt eldsneyti fyrir fram á mexíkóskum flugvöllum þar sem félagið skuldar reikning fyrir þotueldsneyti upp á 7.7 milljarða króna.

Nú hefur starfsfólk flugfélagsins hótað því að fella niður störf sín þar sem það hefur ekki fengið greidd laun frá því í september en flugfélagið hefur nú lofað að greiða starfsfólki laun í þessari viku fyrir að minnsta kosti tveggja vikna tímabil þrátt fyrir að Alejandro del Valle, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að flugfélagið eigi engan pening lengur.

„Eins og staðan er í dag þá er rekstur Interjet orðin tvísýnn, fjárhagslegt öryggi orðið tæpt og getur félagið ekki ábyrgst að koma farþegum á leiðarenda og er ekki víst að það geti staðið við skuldbingingar sínar lengur“, segir í yfirlýsingu frá neytendasamtökunum í Mexíkó.

„Flugfélag með yfir 5.000 starfsmenn getur ekki staðið í flugrekstri með aðeins fjórar flugvélar“, sagði Alejandro sem tekur fram að félagið sé að leita að nýjum fjárfestum til þess að geta fengið aukið fé og þar með komið 16 flugvélum aftur í loftið svo hægt sé að auka sætaframboðið og laðað að fleiri farþega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga