flugfréttir
Rekstur Norwegian í óvissu og nálgast lífróður
- Norska ríkisstjórnin ætlar ekki að setja meira fé í Norwegian
Jacob Schram, framkvæmdarstjóri Norwegian
Framtíð norska flugfélagsins Norwegian er sögð í mikilli óvissu eftir að ríkisstjórn Noregs hefur formlega tilkynnt að stjórnvöld ætla ekki að veita félaginu meiri fjárhagsaðstoð.
Þetta kom fram á blaðamannafundi í morgun og segir Jacob Schram, framkvæmdarstjóri Norwegian, að þessi tíðindi séu mjög sláandi og séu í raun kjaftshögg fyrir félagið og starfsfólk þess.
Schram segist ekki sjá hvernig Norwegian eigi að ná að þrauka í gegnum veturinn án neinnar fjárhagsaðstoðar
og bendir hann á að á sama tíma hafa önnur samkeppnisflugfélög fengið mun hærri upphæðir í formi styrkja á tímum
kórónaveirufaraldursins.
Á blaðamannafundinum þakkað Schram sarfsfólki sínu og viðskiptavinum félagsins fyrir allan þann
stuðning sem þeir hafa veitt félaginu auk þess sem hann þakkaði lánadrottnum, hluthöfum, fjárfestum og fleiri aðilum
sem hafa hjálpað félaginu á erfiðum tímum.
Schram benti á að Norwegian væri norskt flugfélag og hluti af norskri menningu og hafi félagið
skilað tæpum 400 milljörðum króna í norska þjóðarbúið á hverju ári og skapað yfir 24.000 störf.
„Bara það ætti að vera góð fjárfesting og ástæða til þess að styðja við bakið á félaginu. Að gera það
ekki er eitthvað sem ég næ ekki að átta mig á. Ferðamannaiðnaðurinn í Noregi hefur lengi
bent á mikilvægi Norwegian og því fjölbreytta leiðarkerfi sem við höfum boðið upp á“, segir Schram.
Voru farin að sjá fram á hagnað og betri tíma
Þótt að Norwegian hefur átt erfitt uppdráttar í nokkur ár og átt í erfiðleikum áður en kórónaveirufaraldurinn
braust út þá segir Jacob Schram að sumarið í ár hefði án COVID-19 verið besta sumar í sögu félagsins
og var félagið stutt frá því að fara koma út í hagnað.
„Við vorum farin að sjá skýr ummerki um góða uppskeru af því erfiða starfi sem við höfum unnið að frá því árið
2018 og ef við hefðum fengið áframhaldandi styrk frá norsku ríkisstjórninni þá hefði Norwegian orðið
sjálfbært og vel rekið flugfélag með endurbættu rekstarfyrirkomulagi.
Schram segir að þar sem engin frekari fjárhagsstuðningur er í sjónmál þá sé mjög erfiður og grýttur vegur framundan og ætlar hann og stjórn félagsins að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma Norwegian í gegnum krísuna miðað við þessar forsendur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.