flugfréttir
Fresta afhendingum á þremur A350 breiðþotum um 2 ár
Airbus A350-900 breiðþota frá Finnair
Finnair hefur gert samkomulag við Airbus um að fresta afhendingum á þeim þremur Airbus A350-900 breiðþotum sem félagið á eftir að fá afhentar.
Finnair hefur í dag sextán Airbus A350-900 þotur í flota sínum en enn á eftir að afhenda þrjár til viðbótar
til félagsins.
Til stóð að afhenda næstu A350 þotu til félagsins vorið 2021 og hinar tvær fram til vorsins 2022 en rekstur
Finnair hefur orðið verulega fyrir barðinu á heimsfaraldrinum og hefur félagið átt erfitt með að skera
niður rekstarkostnað.
Því hefur verið ákveðið að fresta afhendingum á síðustu A350 breiðþotunum um að minnsta kosti 2 ár en með því nær Finnair
að spara sér 32 milljarða króna sem félagið hefði annars þurft að greiða fyrir þoturnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.