flugfréttir
Etihad stefnir á að segja upp fleiri flugmönnum
- Þurfa að skera enn meira niður vegna áframhaldandi áhrifa af COVID-19
Boeing 777-300ER þota frá Etihad Aiways í lendingu á flugvellinum í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Etihad Airways hefur varað flugmenn sína við yfirvofandi uppsögnum þar sem flugfélagið hefur ekki náð sér almennilega á strik þar sem áhrifin af kórónuveirufaraldrinum eru að hafa meiri áhrif á rekstur félagsins en vonir voru bundnar við.
„Raunveruleikinn er sá að iðnaðurinn er ekki að ná þeim bata sem vonast var til og verða umsvif flugfélagsins
því áfram í lágmarki um einhvern tíma“, segir í tölvupósti sem Etihad Airways sendi til flugmanna sinna.
„Í ljósi þessa þá er það augljóst að það er engin önnur lausn í stöðunni nema skera niður starfsmannafjölda félagsins“, segir einnig í bréfinu og er tekið fram að í augnablikinu eru hreinlega of margir starfsmenn á launaskrá.
Etihad Airways sagði upp 2.000 starfsmönnum í febrúar og þá kemur fram að hundruðir starfsmanna
hefur verið sagt upp síðan þá til viðbótar.
Ekki kemur fram hversu mörgum flugmönnum verður sagt upp en þeir flugmenn sem verða látnir
hætta störfum eiga von á tölvupósti á næstu tveimur sólarhringum.
Flugfélagið hefur heldur ekki tekið fram hvort að til standi að fækka frekar í flugflotanum en Etihad Airways
hefur áður nefnt að mögulega standi til að hætta með þær tíu Airbus A380 risaþotur sem félagið
hefur í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.