flugfréttir
30 ólögleg flug til Gvatemala það sem af er árinu
- Enn önnur þotan brotlendir nálægt landamærum Mexíkó

Flak einkaþotunnar sem herinn í Gvatemala fann í dag nálægt landamærunum við Mexíkó
Lögreglan í Gvatemala kom í dag auga á flak af einkaþotu sem hafði brotlent í skóglendi nálægt landamærunum við Mexíkó.
Einkaþotan, sem var af gerðinni British Aerospace BAe-125, brotlenti í morgun en það var flugherinn í Gvatemala sem tilkynnti
um að flugvél hefði flogið með ólögmætum hætti inn í lofthelgi landsins áður en hún hvarf af ratsjá.
Flugvélin fórst nálægt þorpinu El Chico og voru lögreglumenn frá fíkniefnalögreglunni sendir á vettvang
og kom í ljós að um borð í einkaþotunni voru 34 pakkningar sem innihéldu kókaín auk þess sem lík eins flugmanns var í stjórnklefanum.

Farmurinn í flaki vélarinnar
Það sem af er árinu hefur 30 flugvélum verið flogið ólöglega til Gvatemala en flugherinn í landinu segir að þetta sé þrítugasta flugvélin sem kemur fram á ratsjá í lofhelginni án þess að hafa skráða
flugáætlun eða leyfi fyrir fluginu.
Aðeins er 11 dagar síðan að flugvél kom seinast ólöglega inn í landið en flak þeirrar vélar fannst á hvolfi í stöðuvatni þann 2. nóvember nálægt landamærunum við Mexíkó.
Sú flugvél kom frá Suður-Ameríku og var af gerðinni
Gulfstream II og voru þrír um borð í þeirri flugvél og komst enginn af þeim lífs af.


8. desember 2020
|
Þýski flugvélaframleiðandinn Deutsche Aircraft kynnti formlega í gær nýja kynslóð af Dornier 328 flugvélinni sem fengið hefur nafnið Dornier 328eco sem til stendur að koma með á markaðinn eftir fimm

4. desember 2020
|
Rannsóknarnefnd flugslysa á Maldívíeyjum gaf nýlega út bráðabirgðarskýrslu varðandi atvik sem átti sér stað er sjóflugvél rakst með væng utan í skip eftir lendingu.

17. nóvember 2020
|
Flugmálayfirvöld í Rússlandi eru nú að rannsaka hegðun tveggja flugmanna sem ákváðu að bregða á það ráð að fljúga af áætlaðri flugleið í miðju áætlunarflugi á milli tveggja borga í Rússlandi þann 11.

14. janúar 2021
|
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, er gestur í nýlegum þætti hjá Flugvarpinu þar sem hún fer yfir það helsta sem hefur verið að gerast hjá Icelandair á árinu 2020 sem var alls ekki g

14. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að draga sig af markaðnum er kemur að flugi yfir Atlantshafið og hætta við öll áform um áframhaldandi flug milli Evrópu og Norður-Ameríku auk þess sem flug

14. janúar 2021
|
Flugfélagið Emirates segir að svo gæti farið að félagið taki ekki við fyrstu Boeing 777X þotunni fyrr en árið 2024 en upphaflega stóð til að afhendingar á Boeing 777X þotunni myndu hefjast í fyrra.

14. janúar 2021
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A321 rakst utan í snjóskafl er hún var að aka í átt að flugbraut fyrir flugtak á flugvellinum í borginni Srinagar í Kashmir-héraði á Indlandi í gær.

13. janúar 2021
|
Flugfélagið Qatar Airways hefur tilkynnt um að allt bendi til þess að helmingurinn af öllum Airbus A380 risaþotum félagsins eigi ekki afturkvæmt í háloftin að loknum heimsfaraldri en fyrir áramót tal

12. janúar 2021
|
Boeing hefur náð samkomulagi við flugfélagið Atlas Air sem ætlar að panta fjórar júmbófraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en um er að ræða fjórar síðustu júmbó-þoturnar sem Boeing mun framleiða og

12. janúar 2021
|
Flugumferð um Heathrow-flugvöllinn í London hefur dregist það mikið saman að flugvöllurinn er ekki einu sinni lengur á lista yfir 30 stærstu flugvelli heims er kemur að fjölda flugtaka og lendinga.

12. janúar 2021
|
Tælenska flugfélagið Thai Airways segir að félagið hafi fjármagn til þess að halda sér á floti í fjóra mánuði til viðbótar og er séð fram á að flugfélagið nái að þrauka fram í apríl í vor.