flugfréttir
CAE: Áframhaldandi skortur á flugmönnum eftir Covid-19
- Þörf á 27.000 nýjum flugmönnum á næsta ári og 264.000 næstu 9 árin
Flugmenn í stjórnklefa á Boeing 757 þotu að undirbúa brottför
Þrátt fyrir að mjög dökkt ástand sé yfir flugiðnaðinum í dag og litla sem enga von er að fá starf sem flugmaður eins og staðan er í augnablikinu þá telur kanadíska flugþjálfunarfyrirtækið CAE að eftirspurn eftir nýjum flugmönnum sé aðeins í stuttum dvala.
Aðeins eru nokkrir dagar síðan að félag breskra atvinnuflugmanna (BALPA) sendi frá sér viðvörun þar sem fólki
var ráðlagt að leggja ekki flugið fyrir sig og varað var við því að hefja flugnám þar sem enga vinnu væri að fá fyrir nýja
flugmenn á næstunni þar sem 10.000 atvinnuflugmenn er í dag atvinnulausir í Evrópu.
CAE segir hinsvegar að þörf verði fyrir 27.000 flugmenn til viðbótar fyrir lok ársins 2021 og þörf verði fyrir 264.000 flugmenn
í heiminum næsta áratuginn.
CAE, sem er leiðandi fyrirtæki í þjálfun flugmanna, útgáfu þjálfunar- og kennsluefnis fyrir atvinnuflug, gaf í gær út nýja spá fyrir eftirspurn eftir flugmönnum og greiningu á atvinnuhorfum í fluginu sem nær til ársins 2029.
Um 80.000 flugmenn hafa misst vinnuna
Fram kemur að í dag hafi um 87.000 flugmenn misst vinnuna vegna heimsfaraldursins og séu því um 300.000 flugmenn starfandi í greininni
en voru um 380.000 áður en COVID-19 heimsfaraldurinn skall á. CAE sér fram á að fjöldi flugmanna í virku starfi muni hækka aftur
í 374.000 fyrir lok næsta árs.
CAE telur að þörf sé fyrir 264.000 nýja flugmenn í heiminum fyrir árið 2029
„Þótt að það verði færri starfandi flugmenn í heiminum fyrir lok næsta árs samanborið við árið 2019 þá þarf iðnaðurinn samt
sem áður á 27.000 nýjum flugmönnum á að halda þar sem margir hafa náð starfslokaaldri eða hætt störfum“, segir í
yfirlýsingu frá CAE.
„Þrátt fyrir að fjöldi flugmanna í starfi hefur dregist saman í smátíma vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 hefur haft þá beytir
það því ekki að flugiðnaðurinn þarf á meira en 260.000 nýjum flugmönnum á að halda“.
Forsendur eftirspurnar eftir flugmönnum hafa ekki breyst vegna Covid-19
Í yfirlýsingu frá CAE segir að aðalforsendurnar fyrir eftirspurn eftir flugmönnum fyrir tíma COVID-19 hafa enn
ekki breyst og séu þær sömu og áður. Þær forsendur eru starfslokaaldur flugmanna sem er sá sami og janfmargir flugmenn munu þurfa að láta
af störfum á næstu árum auk þess sem flugfélög þurfa að endurnýja flugflota og bæta við fleiri flugvélum vegna fjölgun farþega.
Þessir þættir eru þeir stærstu sem kalla á eftirspurn eftir fleiri flugmönnum.
CAE telur að flugiðnaðurinn í heiminum þurfi á 484.000 flugmönnum á að halda árið 2029 en 88% af þeim fjölda, eða 426.000
flugmenn, tilheyrir flugfélögunum á meðan 58.000 flugmenn munu starfa við að fljúga öðrum flugvélum á borð við einkaþotum.
Af þessum fjölda þarf að endurnýja 167.000 flugmenn til að skipta út þeim flugmönnum sem eru komnir á starfslokaaldur eða
hafa hætt að fljúga vegna annarra ástæðna á meðan restin eru þeir flugmenn sem þarf til þess að mæta auknum umsvifum
flugfélaganna.
„Þúsundir flugmanna hafa verið látnir hætta störfum sl. mánuði sem eru ekki lengur að starfa við flugið. Margir þeirra
hafa hafið störf í öðrum greinum eða á nýjum vettvangi og eru því margir sem eiga ekki eftir að snúa aftur í flugið“, segir
í tilkynningu frá CAE.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.