flugfréttir
Vottunarferli vegna Boeing 737 MAX á lokasprettinum
Boeing 737 MAX tilraunarþota Boeing
Steve Dickson, yfirmaður hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA), segir að á næstu dögum sé von á að niðurstöður verði birtar varðandi endurútgáfu á lofthæfni Boeing 737 MAX þotunnar.
Þetta þýðir að möguleg eigi MAX-þoturnar eftir að fá útgefið flughæfnisvottun fyrr en gert var ráð fyrir en í yfirlýsingu
frá bandarískum flugmálayfirvöldum segir að skoðunarferlið varðandi þær breytingar sem gerðar hafa verið
af Boeing sé á lokasprettinum.
„Við gerum ráð fyrir því að þessu muni ljúka á næstu dögum“, segir Dickson en stofnunin tekur fram að þetta nær aðeins
til þeirra Boeing 737 MAX þotna sem hafa verið kyrrsettar frá því í mars árið 2019 og geta þær þotur hafið sig á loft
eftir að úttekt hefur farið fram á þeim.
Boeing hefur tekið fram að framleiðandinn geri ráð fyrir flugmálayfirvöld muni gefa Boeing 737 MAX þotunum leyfi
til þess að fljúga á ný áður en árið er á enda.
„Þótt að við séum að nálgast marklínuna þá mun ég aðeins aflétta flugbanninu eftir að öryggissérfræðingar okkar
eru fullkomnlega ánægðir með niðurstöðuna og fullvissir um að flugvélarnar uppfylli vottunarstaðlana“, segir Dickson.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.