flugfréttir
Emirates tapar 468 milljörðum
- Fyrsti taprekstur Emirates í 30 ár
Frá flugvellinum í Dubai
Emirates tapaði 468 milljörðum króna á fyrri árshelmingi þessa árs en flugfélagið tilkynnti í dag afkomu sína eftir fyrstu sex mánuði ársins.
Til samanburðar þá var hagnaður Emirates á fyrri árshelmingi ársins 2019 um 32 milljarðar króna og þá er um að ræða fyrsta tap á árshelmingi hjá félaginu í 30 ár.
Í tilkynningu frá Emirates segir að þessa slæmu afkomu megi rekja beint til ferðatakmarkanna víða um heim vegna kórónaveirufaraldursins.
Þær tekjur sem Emirates fékk á fyrri árshelmingi eru að mestu leyti tilkomnar vegna fraktflutninga. Þá voru 1.5 milljón farþega sem flugu með Emirates í sumar frá 1. apríl til 30. september sem er 95% samdráttur á farþegafjölda miðað við sama tímabil í fyrra.
Þá störfuðu 24.000 færri starfsmenn hjá Emirates þann 30. september sl. miðað við 31. mars í vor og eru í dag 81.334 starfsmenn hjá félaginu en voru rúmlega 107.000 í vor.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.