flugfréttir

Nýja Ecuadoriana flugfélagið fær flugrekstarleyfi í Ekvador

- Hefja áætlunarflug eftir áramót

12. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:03

Frá flugvellinum í Quito, höfuðborg Ekvador

Nýtt flugfélag stefnir á að hefja flugrekstur í Suður-Ameríku eftir áramót en flugfélagið Ecuatoriana Airlines hefur tilkynnt að félagið hafi fengið flugrekstrarleyfi frá flugmálayfirvöldum í Ekvador.

Ecuatoriana Airlines mun fljúga fyrst um sinn áætlunarflug í innanlandsflugi og verður m.a. flogið frá höfuðborginni Quito til Coca, Cuenca, Esmeraldas, Guyaquil, Loja, Macas, Manta, Santa Rosa og til Tulcán.

Í dag eru flugfélögin Avianca og LATAM þau umsvifamestu í Ekvador en landið hafði sitt eigið þjóðarflugfélag sem nefndist TAME en það flugfélag varð gjaldþrota í maí á þessu ári.

Að baki Ecuatoriana Airlines standa fjárfestar sem koma frá Bandaríkjunum og Ekvador og segir í tilkynningu að félagið hafi engin tengsl við ríkisstjórn landsins eða fyrrum stjórnendur TAME.

Nafn flugfélagsins er ekki nýtt en Ecuatoraide Aviación var lengi ríkisflugfélag landsins sem stofnað var árið 1957 en það félag varð gjaldþrota árið 2006.

Ekki kemur fram hvaða flugvélategundir flugfélagið mun nota til flugsins en þegar Ecuatoriana Airlines sótti um flugrekstarleyfi kom fram að til greina kemur að nota flugvélar af gerðinni Beechcraft B1900C, ATR 42-500, Dash 8 Q200, Airbus A220, Airbus A319 eða Boeing 737 Classic.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga