flugfréttir
Air Canada hættir við 22 þotur frá Boeing og Airbus
Boeing 737 MAX þota frá Air Canada
Kanadíska flugfélagið Air Canada hefur hætt við pantanir í 22 farþegaþotur bæði frá Boeing og Airbus.
Air Canada ætlar að fækka þeim farþegaþotum sem félagið hafði pantað til að aðlaga sig að þeim samdrætti sem talið er að framundan verði í flugiðnaðinum en Air Canada telur að það geti tekið allt að hálfan áratug fyrir flugið að ná sér á strik aftur.
Flugfélagið ætlar að hætta við 12 þotur af gerðinni Airbus A220 sem skilur félagið eftir með tíu þotur af þeirri gerð sem á eftir að afhenda. Þá hefur Air Canada afpantað tíu Boeing 737 MAX þotur og á félagið því von á 16 MAX þotum í stað 26.
Air Canada hefur dregið sætaframboð sitt saman um 80 prósent vegna heimsfaraldursins og fellt niður 30
flugleiðir í innanlandsflugi í Kanada og sagt upp meira en 20.000 manns frá því í mars.
Kanadísk flugfélög hafa ekki fengið neina fjárhagsaðstoð frá kanadíska ríkinu þar sem samgönguráðherra landsins hefur áhyggjur af því að flugfélög þar í landi hafa ekki boðist til að greiða farþegum endurgreiðslu á flugmiðum og aðeins gefið þeim kost á því að eiga flugið
inni síðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.