flugfréttir

Cargolux skoðar möguleika á Boeing 777-300ER fraktþotu

12. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 22:40

Boeing 747-8F júmbó-fraktþota frá Cargolux

Fraktflugfélagið Cargolux íhugar nú að festa kaup á tveimur Boeing 777-300ER fraktþotum frá fyrirtækinu Israel Aerospace Industries (IAI).

IAI hóf nýlega að bjóða upp á fraktútgáfu af Boeing 777-300ER þotunni með því að breyta slíkum farþegaþotum yfir í fraktþotur sem nefnist Boeing 777-300ERSF.

Flugfélagið Kalitta Air gekk frá pöntun í október við IAI um að láta breyta þremur 777-300ER þotum í Boeing 777-300ERSF og verður það félagið það fyrsta til að fá fraktútgáfu af lengri Boeing 777 gerðinni.

Richard Forson, framkvæmdarstjóri Cargolux, greinir frá því að það séu tveir möguleikar sem koma til greina fyrir félagið sem er annaðhvort að láta breyta tveggja hreyfla breiðþotu í fraktþotu, líkt og IAI er að bjóða upp á, eða láta breyta Boeing 747 þotum yfir í fraktþotur.

„Það sem við erum sérstaklega að spá í núna er að fá Boeing 777-300ER þotu sem hefur verið breytt í fraktþotu líkt og IAI og GECAS eru að bjóða upp á.

Forson segir að Cargolux sé einnig mjög spennt fyrir fraktútgáfu af nýju Boeing 777X þotunni ef slík þota kemur á markað en einnig er verið að skoða hugmyndir Airbus með fraktútgáfu af Airbus A350 þotunni sem Airbus gæti látið framleiða þar sem vinsældir A350 hafa verið miklar sl. ár.

Þá tekur Forson fram að það sé nóg af Boeing 777-300ER þotum í boði þar sem mörg flugfélög hafa losað sig við þær vegna heimsfaraldursins og eigi IAI án efa eftir að taka fleiri slíkar þotur til þess að láta breyta í fraktþotur.

Cargolux hefur eingöngu júmbó-fraktþotur í flota sínum og telur flotinn 30 Boeing 747 þotur sem eru af gerðinni Boeing 747-400ERF, Boeing 747-400F og Boeing 747-8F.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga